Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1298, 151. löggjafarþing 505. mál: ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (endurvinnsla og skilagjald).
Lög nr. 30 30. apríl 2021.
Þingskjal 1298, 151. löggjafarþing 505. mál: ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (endurvinnsla og skilagjald).
Lög nr. 30 30. apríl 2021.
Lög um breytingu á lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, nr. 52/1989 (endurvinnsla og skilagjald).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:- Á undan 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Í stað fjárhæðarinnar „14,41 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 16,22 kr.
- Orðin „og skal ráðherra hækka hámarksfjárhæðina í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs frá síðustu hækkun gjaldsins“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
- Orðin „að undanskildum þeim vörum sem seldar eru til tollfrjálsrar verslunar, sbr. 3. mgr.“ í 3. málsl. 1. mgr. falla brott.
- Í stað orðanna „5,50 kr. fyrir umbúðir úr stáli, 0,20 kr. fyrir umbúðir úr áli, 5,30 kr. fyrir umbúðir úr gleri stærri en 500 ml, 3,90 kr. fyrir umbúðir úr gleri 500 ml og minni, 3,20 kr. fyrir umbúðir úr lituðu plastefni og 1,30 kr. fyrir umbúðir úr ólituðu plastefni“ í lokamálslið 1. mgr. kemur: 6,60 kr. fyrir umbúðir úr stáli, 0,80 kr. fyrir umbúðir úr áli, 12,30 kr. fyrir umbúðir úr gleri stærri en 500 ml, 9,40 kr. fyrir umbúðir úr gleri 500 ml og minni, 4,30 kr. fyrir umbúðir úr lituðu plastefni, 2,40 kr. fyrir umbúðir úr ólituðu plastefni og 1,40 kr. fyrir umbúðir úr endurunnu ólituðu plastefni.
- Í stað tilvísunarinnar „1. mgr.“ í 3. mgr. kemur: 2. mgr.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 2. gr. laganna:- Í stað orðsins „umsýslan“ í 1. málsl. kemur: umsýslu.
- Orðið „skilagjaldsins“ í 3. málsl. fellur brott.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Skila má hluthöfum hóflegum arði af því hlutafé sem þeir hafa lagt í félagið.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- 2. málsl. 2. mgr. orðast svo: Félagið skal stuðla að því að umbúðir fari til undirbúnings fyrir endurnotkun, endurvinnslu eða annarrar endurnýtingar í samræmi við forgangsröðun við meðhöndlun úrgangs, sbr. lög um meðhöndlun úrgangs, eða koma þeim annars til förgunar.
- Í stað orðsins „skilum“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: árangri við söfnun.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 4. gr. laganna:- Í stað orðanna „um fjárhæð, innheimtu og endurgreiðslu skilagjaldsins, gerð og efnisval skilagjaldsskyldra umbúða fyrir drykkjarvörur og upphæð umsýsluþóknunar “ í 1. málsl. kemur: um markmið um söfnun, innheimtu og endurgreiðslu skilagjaldsins og stærð, gerð og efnisval skilagjaldsskyldra umbúða fyrir drykkjarvörur.
- 2. málsl. fellur brott.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. tölul. 1. mgr. 5. gr. laganna:- Orðin „við komu til landsins“ falla brott.
- Í stað tilvísunarinnar „3. mgr.“ kemur: 4. og 5. mgr.
6. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. maí 2021.Samþykkt á Alþingi 27. apríl 2021.