Ferill 407. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1306 — 407. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Ágústi Ólafi Ágústssyni um veiðar á fuglum á válista.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvers vegna hafa veiðar verið leyfðar á allt að 15 fuglategundum sem eru á válista Náttúrufræðistofnunar Íslands?
Válisti er skrá yfir tegundir sem eiga undir högg að sækja eða kunna að vera í hættu í tilteknu ríki eða svæði. Þannig eru válistar stjórntæki til að draga fram stöðu viðkomandi tegunda og flokka tegundir niður í mismunandi hópa eftir því hve alvarleg ógnin er sem þær standa frammi fyrir. Þannig eru margvíslegar skýringar á stöðu tegunda á válistum og alls ekki í öllum tilvikum tengdar veiðum. Náttúrufræðistofnun Íslands birti endurskoðaðan válista fyrir fugla árið 2018, þar sem stofnunin hafði endurmetið stöðu margra fuglategunda í landinu frá fyrri lista sem var birtur árið 2000. Til frekari skýringar vísast til svars ráðherra við fyrirspurn um veiðar á fuglum á válistum á þingskjali 2011, 42. máli á 150. löggjafarþingi.
Veiðar á villtum fuglum eru ákvarðaðar á grunni laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Á grundvelli laganna eru villt dýr friðuð, en ákvörðun um að aflétta friðun á ákveðnum tegundum á ákveðnum tímum skal byggjast á því að viðkoma stofns sé nægileg til þess að vega upp á móti afföllum vegna veiða og að með veiðum sé verið að nytja verðmæti í kjöti, skinnum eða öðrum afurðum. Markmið laganna er að tryggja viðgang og náttúrulega fjölbreytni villtra dýrastofna, skipulag á veiðum og annarri nýtingu dýra, svo og aðgerðir til þess að koma í veg fyrir tjón sem villt dýr kunna að valda.
Þessi lög eru um margt komin til ára sinna og var kveðið á um endurskoðun þeirra í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Þau hafa nú verið endurskoðuð og hefur ráðherra lagt fram frumvarp á Alþingi um vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum sem kveður á um ýmsar breytingar á þeim. Frumvarpið er nú til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Við endurskoðun laganna var lögð sérstök áhersla á að styrkja stjórntæki sem undirbyggja ákvarðanatöku um veiðar og sjálfbærni þeirra, svo og varðandi veiðar á tegundum sem valda tjóni. Frumvarpið kveður því á um að lögfesta gerð stjórnunar- og verndaráætlana fyrir fuglategundir þar sem leggja á grunn að því að ávallt verði byggt á haldbærum, faglegum og vísindalegum upplýsingum við vernd, stýringu og stjórnun á stofnum villtra dýra, þ.m.t. flokkun á válista. Verði frumvarpið að lögum mun því vísindaleg nálgun varðandi veiðistjórnun styrkjast, þ.m.t. er varðar tegundir á válista.