Ferill 732. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1331  —  732. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um dóma Landsréttar í vændiskaupamálum.


     Hver var fjöldi dóma Landsréttar í málum er varða vændiskaup árin 2018–2020, sundurliðað eftir því hvort:
     a.      fyrri dómur var staðfestur,
     b.      fyrri dómi var breytt, og þá hvort það var til þyngri eða vægari refsingar,
     c.      fyrri dómi var snúið, og þá hvort sakfellingu var snúið í sýknu eða sýknu snúið í sakfellingu,
     d.      um ómerkingu, frávísun eða niðurfellingu var að ræða?


    Samkvæmt upplýsingum frá Landsrétti hefur ekkert mál vegna ætlaðra vændiskaupa komið til kasta réttarins.