Ferill 771. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1343  —  771. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um ferðakostnað lögregluembætta.

Frá Birgi Þórarinssyni.


     1.      Hver var árlegur heildarkostnaður lögregluembætta vegna aksturs á einkabifreiðum frá 1. janúar 2017 til 31. desember 2020, sundurliðað eftir embættum og greiðslum annars vegar til yfirmanna og hins vegar til annarra en starfsmanna? Auk þess er óskað eftir yfirliti yfir upphæðir hærri en 100.000 kr. sem hafa verið endurgreiddar og hvernig þær skiptast á ár, embætti og stöður.
     2.      Hver var árlegur kostnaður lögregluembætta fyrir sama tímabil, sundurliðað eftir embættum:
                  a.      við ferðir starfsmanna vegna nauðsynlegra verkefna erlendis,
                  b.      við ferðir starfsmanna sem búa erlendis en ferðast til Íslands til og frá vinnu,
                  c.      við boðsferðir,
                  d.      við að fylgja umsækjendum sem hefur verið synjað um alþjóðlega vernd úr landi,
                  e.      við aðrar ferðir sem ekki teljast til verkefna lögregluembætta?


Skriflegt svar óskast.