Ferill 666. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1427  —  666. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna bifreiðar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Telur ráðherra koma til greina að gera breytingu á reglugerð nr. 690/2020, um tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts, þess efnis að bílar sem flokkast sem sendibifreið (N1) en eru ekki notaðir í atvinnurekstur geti fallið undir átakið? Ef ekki, hvers vegna?

    Samkvæmt 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XXXIII í lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, tekur hin tímabundna endurgreiðsla vegna bílaviðgerða, bílamálningar eða bílaréttinga eingöngu til fólksbifreiða. Í samræmi við það er fólksbifreið skilgreind í 2. gr. reglugerðar nr. 690/2020, um tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna, sem bifreið sem aðallega er ætluð til fólksflutninga og gerð er fyrir átta farþega eða færri og skráð sem fólksbifreið í flokkinn (M1) í ökutækjaskrá. Um er að ræða sömu skilgreiningu hugtaksins „fólksbifreið“ og fram kemur í reglugerð nr. 822/2004, um gerð og búnað ökutækja, sbr. lið 01.11 í 1. gr. þeirrar reglugerðar. Vísað er til reglugerðar nr. 822/2004 í 2. gr. reglugerðar nr. 690/2020.
    Undir hugtakið „fólksbifreið“ í 2. gr. reglugerðar nr. 690/2020 falla m.a. fólksbifreiðar sem eru sérútbúnar fyrir hreyfihamlaða og húsbifreið, sbr. liði 01.101 og 01.209 í reglugerð nr. 822/2004. Ef sætafjöldi er aftur á móti skráður fyrir níu farþega eða fleiri flokkast ökutæki þó sem hópbifreið.
    Skilgreining á hugtakinu „sendibifreið (N1)“ kemur fram í reglugerð nr. 822/2004, sbr. lið 01.13 í 1. gr. reglugerðarinnar. Með sendibifreið er átt við bifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna sem ætluð er að öllu eða mestu leyti til vöruflutninga. Í skilgreiningunni er auk þess að finna nánari skilyrði fyrir skráningu bifreiðar sem sendibifreiðar, m.a. að bifreiðinni hafi ekki verið breytt hvað varðar fólks- eða farrými.
    Það er undirstöðuregla íslenskrar stjórnskipunar að stjórnvöld séu bundin af lögum. Í reglunni, sem almennt er nefnd lögmætisreglan, felst annars vegar að reglugerðir og stjórnvaldsákvarðanir verði almennt að eiga sér stoð í lögum og hins vegar að þær megi ekki vera í andstöðu við lög.
    Reglugerð nr. 690/2020 er m.a. sett með heimild í 7. mgr. ákvæðis til bráðabirgða nr. XXXIII í lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 1. mgr. 49. gr. sömu laga. Þar sem fyrir liggur að tímabundin heimild 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XXXIII í lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, nær eingöngu til fólksbifreiða liggur fyrir að ekki er heimilt að gera breytingu á reglugerð nr. 690/2020 þess efnis að bílar sem flokkast sem sendibifreiðar (N1) en eru ekki notaðir í atvinnurekstri geti fallið undir reglugerðina.