Ferill 799. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1453  —  799. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952 (veiting ríkisborgararéttar).

Flm.: Þorsteinn Sæmundsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Páll Jónsson.


1. gr.

    II. kafli laganna ásamt fyrirsögn fellur brott.

2. gr.

    7. gr. laganna orðast svo:
    Útlendingastofnun er heimilt, að fenginni umsögn lögreglu að veita íslenskan ríkisborgararétt samkvæmt umsókn sem borin er fram af umsækjanda sjálfum eða forsjármönnum hans hafi hann ekki náð 18 ára aldri, enda fullnægi hann skilyrðum 8. og 9. gr. Ákvarðanir Útlendingastofnunar sæta kæru til ráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt stjórnsýslulögum.

3. gr.

    Í stað tilvísunarinnar „1. mgr. 7. gr.“ í 1. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 9. gr. laganna kemur: 7. gr.

4. gr.

    Fyrirsögn III. kafla laganna verður: Veiting ríkisborgararéttar.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Í lögum um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, er m.a. kveðið á um ríkisfangsveitingar til þeirra sem öðlast ekki íslenskt ríkisfang við fæðingu. Þar segir að ríkisborgararéttur sé annars vegar veittur með lögum og hins vegar með stjórnvaldsákvörðun.
    Með frumvarpi þessu er lagt til að fellt verði brott ákvæði 6. gr. laganna sem kveður á um að Alþingi veiti ríkisborgararétt með lögum. Þess í stað veiti Útlendingastofnun, að fenginni umsögn lögreglu, íslenskan ríkisborgararétt en ákvarðanir Útlendingastofnunar sæti kæru til ráðherra og um málsmeðferð fari samkvæmt stjórnsýslulögum.
    Meginreglan hefur verið sú að valdheimildir til veitingar íslensks ríkisfangs eru hjá Alþingi. Hér áður fyrr sagði í stjórnarskránni að útlendingi yrði aðeins veittur ríkisborgararéttur með lögum. Með stjórnarskipunarlögum, nr. 97/1995, um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, var þessu breytt og segir nú að útlendingi verði aðeins veittur íslenskur ríkisborgararéttur „samkvæmt“ lögum. Í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi því er varð að stjórnarskipunarlögum nr. 97/1995 segir að með þessari breytingu sé löggjafanum veitt svigrúm til að setja almenn lög um veitingu ríkisborgararéttar þar sem setja mætti almenn skilyrði fyrir að öðlast íslenskt ríkisfang og fela stjórnvöldum að annast veitingu ríkisborgararéttar, í stað þess að setja sérstök lög um að veita tilteknum einstaklingum ríkisborgararétt.
    Að mati flutningsmanna er rétt að ákvarðanir um veitingu ríkisfangs séu alfarið á hendi framkvæmdarvaldsins. Um er að ræða ákvarðanir um réttindi og skyldur einstaklinga. Um þær þurfa að gilda skýr og hlutlæg viðmið og geðþótti á aldrei að geta ráðið því hvernig umsókn einstaklings um svo mikilvæg réttindi er meðhöndluð. Framkvæmdarvaldið er bundið af reglum stjórnsýsluréttar sem hafa það markmið að mæla fyrir um samræmdar og skýrar reglur um málsmeðferð stjórnvalda þegar þau taka stjórnvaldsákvarðanir. Um málsmeðferð þingsins gilda engar slíkar reglur og er fyrirkomulagið almennt ógagnsætt.