Ferill 392. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1455  —  392. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Ísleifssyni um námsárangur pilta og stúlkna í skólakerfinu.


     1.      Hvaða tölur liggja fyrir um mismunandi árangur pilta og stúlkna í skólakerfinu eins og hann mælist m.a. í einkunnum? Ef marktækur munur er fyrir hendi, hverjar telur ráðherra vera skýringar á ólíkum árangri pilta og stúlkna?
    Ekki er um samræmt námsmat að ræða á leikskólastigi og upplýsingum um árangur leikskólabarna er ekki safnað miðlægt en reglulega er fylgst með framförum leikskólabarna í námi, málþroska, hreyfiþroska, vitsmunaþroska og samskiptahæfni í hverjum leikskóla fyrir sig. Mat á þroska og líðan leikskólabarna er á ábyrgð hvers leikskóla og ekki er gerð krafa um að nýta ákveðin matstæki við mat á framförum barna en leikskólar nýta sér margar mismunandi leiðir til þess. Eina matstækið fyrir leikskólastigið sem gefið hefur verið út hjá Menntamálastofnun er HLJÓM-2 sem er aldursbundin skimun sem er lögð fyrir til að meta hljóðkerfis- og málmeðvitund barna í elsta árgangi leikskólans í því skyni að greina þau börn sem eru í áhættu fyrir síðari lestrarerfiðleika.
    Í ljósi þess að heilsugæslan framkvæmir skimanir á þroska barna á leikskólaaldri hefur ekki verið talið æskilegt að börnin séu einnig skimuð með formlegum hætti í leikskólum. Leikskólakennarar eru yfirleitt í góðu samstarfi við heilsugæsluna vegna tveggja og hálfs árs og fjögurra ára skoðana sem framkvæmdar eru á vegum ung- og smábarnaverndar heilsugæslunnar. Heilsugæslan nýtir þar meðal annars BRIGANCE Screens sem í raun eru mörg þroskamatstæki. Til að meta grun á frávikum í þroska ungra barna nýtir heilsugæslan einnig í ung- og smábarnaverndinni PEDS-matstæki fyrir börn frá fæðingu til átta ára aldurs. Notkun PEDS stuðlar að samvinnu fagfólks og foreldra til að styðja barnið eftir þörfum þess. Ef grunur vaknar um þroskafrávik við heilsufarsskoðanir heilsugæslu hefur heilsugæslan yfirleitt samband við leikskólann.
    Samkvæmt gögnum sem fyrir liggja um námsárangur grunnskólanemenda á grundvelli samræmds námsmats; lesfimiprófa Menntamálastofnunar í 1.–10. bekk grunnskóla, samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 9. bekk grunnskóla og PISA, alþjóðlegri rannsókn meðal 15 ára nemenda, er frammistaða stúlkna í öllum námsþáttum að jafnaði marktækt betri en frammistaða drengja. Undantekning er þegar um er að ræða lesskilningshluta í samræmdum könnunarpófum í ensku í 9. bekk grunnskóla en þar er námsárangur pilta marktækt betri en stúlkna.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Lesfimipróf Menntamálastofnunar – niðurstaða á mati á lesfimi í maí árin 2015–2020 í 1.–10. bekk grunnskóla.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Frammistaða nemenda eftir kyni á samræmdum könnunarprófum í grunnskóla á árunum 2005–2020. Einkunnir eru normaldreifðar með meðaltal 30 (brotalínan) og staðalfrávik 10.
Meðalframmistaða eftir kyni er birt með 95% vikmörkum, ef vikmörkin skarast er ekki tölfræðilega marktækur munur milli hópa.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Frammistaða nemenda eftir kyni á samræmdum könnunarprófum í grunnskóla á árunum 2005–2020. Einkunnir eru normaldreifðar með meðaltal 30 (brotalínan) og staðalfrávik 10.
Meðalframmistaða eftir kyni er birt með 95% vikmörkum, ef vikmörkin skarast er ekki tölfræðilega marktækur munur milli hópa.

    Í lesskilningi hlutu stúlkur á Íslandi marktækt fleiri stig en drengir í PISA-rannsókninni 2018 meðal 15 ára nemenda. Kynjamunur í lesskilningi stúlkum í hag einskorðast ekki við Ísland því stúlkur hlutu fleiri stig en drengir í PISA 2018 í öllum þátttökuríkjum OECD. Kynjamunurinn er þó í hærri kantinum á Íslandi (40 stig) miðað við OECD-meðaltalið (30 stig).
    Kynjamunur í frammistöðu í lesskilningi birtist einnig í hlutfalli nemenda sem tekst ekki að ná skilgreindum lágmarksviðmiðum. Hlutfall íslenskra drengja sem ekki náðu lágmarksviðmiðum 2018 er 34,4% en hlutfallið er nokkuð lægra hjá stúlkum, eða 18,7%. Til samanburðar voru að jafnaði 27,7% drengja í ríkjum OECD undir lágmarkinu og 17,5% stúlkna og því er ljóst að staða drengja er víða slæm en staða íslenskra drengja er nokkuð verri en að jafnaði meðal OECD-ríkja.
    Þróun frammistöðu í PISA frá því að fyrsta könnunin var lögð fyrir árið 2000 sýnir að kynjamunur í lesskilningi á Íslandi – og í flestum OECD-ríkjum – hefur verið til staðar frá upphafi. Á Íslandi hefur munurinn sveiflast lítillega en verið af svipaðri stærðargráðu og ekkert bendir til þess að hann sé að aukast.

Læsi á stærðfræði.
    Stúlkur á Íslandi hlutu einnig marktækt fleiri stig en drengir í læsi á stærðfræði í PISA 2018 en munurinn er töluvert minni en í lesskilningi, eða 10 stig. Ísland sker sig hér nokkuð úr því í flestum OECD-ríkjum var kynjamunur í læsi á stærðfræði drengjum í hag. Þessi munur er þó almennt lítill – að meðaltali fimm stig – og er talsvert minni en sá munur sem komið hefur í ljós milli drengja og stúlkna í lesskilningshluta PISA. Hlutfall íslenskra drengja sem ekki náði lágmarksviðmiðum í læsi á stærðfræði í PISA 2018 (23,4%) er nálægt meðaltali OECD-ríkja (23,9%). Íslenskar stúlkur koma betur út í samanburði við önnur lönd því hlutfallið er 18% á Íslandi en 24,4% að jafnaði hjá stúlkum innan OECD.
    Þróun frammistöðu nemenda í læsi á stærðfræði í PISA sýnir að oftast hefur munur á milli kynja hér á landi verið innan skekkjumarka, en árin 2003 og 2012 var munurinn marktækt stúlkum í hag, þótt lítill hafi verið.

Læsi á náttúruvísindi.
    Á Íslandi var einnig lítill en marktækur munur á frammistöðu kynjanna í læsi á náttúruvísindi í PISA 2018 þar sem stúlkur hlutu átta stig umfram drengi. Í flestum OECD-ríkjum er munurinn lítill og ýmist stúlkum eða drengjum í hag, þó má oftar greina marktækan mun stúlkum í hag. Meðaltal kynjamunar í OECD-ríkjum er tvö stig, stúlkum í hag.
    Hlutfall íslenskra drengja sem ekki náði lágmarksviðmiðum í læsi á náttúruvísindi í PISA 2018 (27,8%) er yfir meðaltali OECD-ríkja (23,2%). Líkt og í læsi á stærðfræði koma íslenskar stúlkur betur út en drengir í samanburði við önnur lönd því hlutfallið er 22,2% á Íslandi en 20,8% að jafnaði hjá stúlkum í löndum OECD.
    Í fyrri PISA-könnunum stóðu íslenskir drengir og íslenskar stúlkur sig álíka vel og ekki var marktækur munur á frammistöðu þeirra. Þess má geta að breytingin í PISA 2018 kemur til vegna þess að stúlkur bættu frammistöðu sína lítillega frá því í síðustu könnun en drengir stóðu í stað.
    Ekki hefur verið hægt að rekja mun á milli frammistöðu drengja og stúlkna við lok grunnskólagöngu til ólíkra skóla, landshluta eða prófverkefna. Þó eru vísbendingar um að ólík menning megi að einhverju leyti skýra mun á milli kynja, þar sem kynjahalli er að jafnaði í sömu átt innan ólíkara menningarsvæða. Munur á námsárangri milli kynja er minni við upphaf skólagöngu en eykst eftir því sem ofar dregur í skólagöngu.

Framhaldsskólastig.
    Ekki er um samræmt námsmat eða samræmd próf að ræða á framhaldsskólastigi og upplýsingum um námsárangur framhaldsskólanema er ekki safnað miðlægt. Í Innu, upplýsingakerfi framhaldsskóla, eru einkunnir nemanda skráðar og má þar m.a. finna meðaleinkunn nemenda á lokaprófi, sú einkunn er þó ekki samræmd á milli skóla. Vandkvæði eru á samanburði einkunna pilta og stúlkna á framhaldsskólastigi ólíkt grunnskólastigi og kemur þar margt til. Einkunnir eru ekki sambærilegar hvorki milli mismunandi námsbrauta né innan ákveðinna námsleiða. Sem dæmi er ekki endilega rökrétt að bera saman einkunnir af stúdentsbraut í náttúrufræði og einkunnir úr matsveinanámi þar sem um gerólíkar námsgreinar er þar að ræða, þó að þær noti sama einkunnaskala. Það sama á við um mismunandi stúdentsbrautir þar sem megnið af námsgreinum þeirra eru ekki sambærilegar og einnig þegar um er að ræða svipaða áfanga í mismunandi skólum þar sem viðfangsefni og námsmat er ekki eins. Þess má geta að um 150 staðfestar stúdentsbrautir eru nú til og skýrist fjöldi þeirra af sjálfstæði framhaldsskóla til að hanna sínar brautir sjálfir.
    Hagstofa Íslands safnar gögnum frá framhaldsskólum um nemendur sem útskrifast í lok hverrar annar. Hér má sjá fjölda brautskráðra eftir kyni af almennu stúdentsprófi annars vegar og burtfararprófi úr iðn hins vegar, skólaárin 2015/2016 – 2018/2019.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Hagstofa Íslands.

    Taflan sýnir að 77% fleiri piltar en stúlkur brautskráðust með burtfararpróf úr iðnnámi skólaárið 2018/2019 en 35% fleiri stúlkur en piltar brautskráðust með almennt stúdentspróf sama skólaár.

Háskólastig.
    Tiltölulega lítill munur er á árangri pilta og stúlkna. Þegar einkunnir í grunnnámi fyrir tímabilið 2010–2019 eru skoðaðar kemur í ljós að stúlkur fá að jafnaði 0,35 hærri einkunnir en piltar. Þá eru vísbendingar um að stúlkur séu líklegri en piltar til að ljúka því grunnnámi sem þau innritast í. Hagstofa Íslands safnar gögnum frá háskólum um fjölda nemenda sem útskrifast úr dagskóla, kvöldskóla eða fjarnámi í lok hverrar annar. Hér má sjá yfirlit yfir fjölda brautskráðra nemenda á háskólastigi eftir aldursflokki og kyni árin 2015–2019.

2015–2016 2016–2017 2017–2018 2018–2019
Karlar Konur Karlar Konur Karlar Konur Karlar Konur
21 árs og yngri 6 1 3 2 2 5 0 4
22–24 ára 360 496 313 526 327 523 326 514
25–29 ára 637 1.099 660 1.037 573 1.047 593 1.065
Heimild: Hagstofa Íslands.

    Aldur nemenda er miðaður við áramót eftir fyrsta útskriftardag nemandans á skólaárinu. Hver nemandi er aðeins talinn einu sinni á hverju skólastigi á sama skólaári. Próf eru flokkuð samkvæmt ÍSNÁM2008, sem er byggð á alþjóðlegri flokkun menntunar, ISCED97.
    Háskólamenntuðu fólki hefur fjölgað á síðustu árum en þróunin hefur verið ólík eftir kynjum; ríflega helmingur kvenna á aldrinum 25–64 ára hefur lokið háskólagráðu á móti 35% karla. Samkvæmt nýlegri könnun á högum háskólanema í 28 ríkjum Evrópu eru konur alls staðar í meirihluta nemenda eins og hér á landi en hlutfall karla þó hvergi lægri. Orsakir þessa má m.a. rekja til brotthvarfs drengja úr framhaldsskólum. Þessi þróun hefur í för með sér hættu á að sumir samfélagshópar njóti ekki sömu tækifæra og aðrir til lífsgæða og atvinnu við hæfi. Í þessu samhengi má líta til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um að afnema kynjamismunun í menntakerfinu og tryggja fólki í viðkvæmri stöðu aðgang að gæðamenntun á öllum skólastigum.

     2.      Er brottfallsnemendum í framhaldsskóla veitt sérstök aðstoð? Ef við á, er hún hin sama fyrir pilta og stúlkur? Er marktækur munur á brottfalli pilta og stúlkna úr framhaldsskólum? Hverjar telur ráðherra vera skýringar á þeim mun ef hann er fyrir hendi? Hvaða áform hefur ráðherra um viðbrögð við slíkum mun ef við á?
    Framhaldsskólar fá sérstakt framlag í gegnum reiknilíkan framhaldsskólanna sem ætlað er að styðja við þjónustu sem skólar skipuleggja fyrir nemendur sem taldir eru vera í brotthvarfshættu, þ.e. nemendur sem koma í framhaldsskóla með slaka einkunn úr grunnskóla í íslensku eða stærðfræði. Sömuleiðis fá framhaldsskólar framlag til stuðnings nemendum með íslensku sem annað mál.
    Árið 2015 setti ráðuneytið af stað sérstakt verkefni sem miðar að því að draga úr brotthvarfi í framhaldsskólum undir heitinu Aðgerðir gegn brotthvarfi í framhaldsskólum. Menntamálastofnun var falið að hafa umsjón með verkefninu og skilaði lokaskýrslu til ráðuneytisins í maí 2020. Verkefnið fól í sér skipulagða skimun fyrir brotthvarfi innan framhaldsskólanna og úthlutun styrkja sem skólarnir sóttu um til að þróa aðgerðir gegn brotthvarfi. Á árunum 2016–2018 var tæplega 180 millj. kr. úthlutað til skólanna í þessu skyni en frekari upplýsingar um aðgerðirnar sem skólarnir þróuðu og verkefnið í heild, eru birtar í skýrslum Menntamálastofnunar á heimasíðu stofnunarinnar. Sömuleiðis má finna skýrslur og greinargerðir um aðgerðir gegn brotthvarfi á heimasíðum framhaldsskóla.
    Almennt er meira brotthvarf drengja úr framhaldsskóla en stúlkna. Brotthvarf nýnema er sérstaklega mælt af ráðuneytinu og þar er brotthvarf drengja meira en stúlkna, með hlutfallinu 1,5 drengur fyrir hverja 1 stúlku. Hér merkir nýnemi nemandi sem er að hefja sitt fyrsta ár í framhaldsskóla að loknum grunnskóla. Síðustu ár hefur brotthvarf nýnema lækkað þónokkuð, bæði hjá drengjum og stúlkum eins og sjá má á eftirfarandi mynd.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Mennta- og menningarmálaráðuneyti.

    Skýringar á brotthvarfi frá námi í framhaldsskóla eru marg- og fjölþættar og ekki allar þekktar. Ein sterkasta forspá fyrir brotthvarfi úr námi í framhaldsskóla eru einkunnir úr grunnskóla. Almennt eru drengir með nokkuð lægri einkunnir úr grunnskóla en stúlkur og því að nokkru leyti ekki eins vel undirbúnir undir nám í framhaldsskóla og stúlkur.
    Skuldbinding nemenda til náms ræður miklu um árangur í námi (Atli Hafþórsson og K. Stella Blöndal 2018). Í rannsókninni Ungt fólk, sem er rannsókn á viðhorfum og stöðu ungmenna í 8.–10. bekkjar í grunnskólum landsins, kemur fram að 6% stúlkna og 12% stráka í 10. bekk finnist námið vera tilgangslaust („á oft eða nær alltaf við um mig“) og 32% stráka leiðist námið á móti 22% stelpna („á oft eða nær alltaf við um mig“) (Rannsóknir og greining 2020). Í þeim tölum sést að skuldbinding er almennt lægri hjá strákum en stelpum við lok grunnskólagöngu.
    Í nýlegri íslenskri rannsókn (Kristjana Stella Blöndal og Atli Hafþórsson 2018) eru greindir fjórir hópar brotthvarfsnema, og eru flestir strákar í hópnum sem telst vera fráhverfur námi, sem var sá hópur sem aðgreindist hvað mest frá öðrum hópum. Sá hópur reynist hafa minni metnað til náms, minni samsömum við skóla, minni námslega skuldbindingu, og lakari námsárangur en aðrir hópar. Þátttaka foreldra í námi í þessum hópi var langminnst, en þegar þátttaka foreldra var í námi hjá þeim hópi, þó dró úr líkum á brotthvarfi úr námi í framhaldsskóla (Kristjana Stella Blöndal og Atli Hafþórsson 2018).
    Hagstofa Íslands birtir reglulega svokallað árgangsbrotthvarf framhaldsskólanema. Þá er nemum sem innritast í framhaldsskóla fylgt eftir og talinn fjöldi þeirra sem eru ekki lengur skráður í skóla og hafa ekki brautskráðst, fjórum árum, sex árum og sjö árum eftir innritun. Á myndinni hér að neðan er sýnt brotthvarf nemenda eftir kyni, sem hafa horfið frá námi fjórum árum eftir innritun árin 2013, 2014 og 2015 og má sjá að brotthvarf pilta er töluvert hærra en stúlkna og í samræmi við brotthvarf nýnema eftir kyni sem fjallað er um hér að framan.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Hagstofa Íslands.

    Ráðuneytið hefur unnið að fjölda verkefna og aðgerða er tengjast snemmbærum stuðningi og forvörnum gegn brotthvarfi úr framhaldsskóla en þær ná til leik-, grunn- og framhaldsskólastigs. Má þar nefna: starfshóp um snemmbæran stuðning í skólakerfinu en hlutverk hópsins er finna leiðir til að bæta líðan, auka námsárangur og minnka brotthvarf úr námi með því m.a. að greina starfs- og kennsluhætti í leik-, grunn- og framhaldsskólum; verkefni um brotthvarf drengja úr námi og nemenda með annað móðurmál en íslensku, en í verkefninu eru orsakir brotthvarfs greindar, sérstaklega meðal drengja og nemenda með annað móðurmál en íslensku og samhliða nýttar niðurstöður rannsókna til að móta markvissari úrræði til að sporna við brotthvarfi; faghóp um heilsueflandi framhaldsskóla sem stýrt er af embætti landlæknis og er þverfaglegur samstarfsvettvangur aðila sem vinna að heildrænni eflingu heilsu og líðan ungmenna; tilraunaverkefni sex framhaldsskóla um notkun tæknilausna til að auka og bæta stoðþjónustu, t.d. sálfræðinga og náms- og starfsráðgjafa, fyrir nemendur í framhaldsskólum o.fl.
    Nú stendur yfir vinna við skýrslu fyrir Velferðarvaktina um brotthvarf og námstafir á framhaldsskólastigi. Verkefnið snýst um greiningu gagna Hagstofu Íslands og ráðuneytis er varða brotthvarf og námstafir á framhaldsskólastigi þar sem horft verður til félagslegs og efnahagslegs bakgrunns nemenda ásamt námsárangri á grunnskólastigi með það fyrir augum að kortleggja þætti sem spá fyrir um brotthvarf og námstafir. Gera má ráð fyrir að skýrslan liggi fyrir fljótlega.

     3.      Hvaða skýrslur og úttektir liggja fyrir um aðstoð við nemendur á öllum skólastigum? Hvernig er sérkennslu pilta háttað miðað við sérkennslu fyrir stúlkur? Hverjar eru greiningar á vanda stúlkna annars vegar og pilta hins vegar? Að hve miklu leyti miðast sérkennsla (og önnur hjálp) við sjúkdómsgreiningar? Hver er aukning sjúkdómsgreininga á athygli og virkni síðasta áratuginn?
    Samkvæmt lögum um þau skólastig sem fyrirspurn þessi varðar eiga nemendur rétt á að njóta menntunar við hæfi þar sem komið er til móts við náms- og félagslegar þarfir nemenda. Réttur þessi byggist á hugmyndafræði um menntun fyrir alla þar sem manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti er haft að leiðarljósi við framkvæmd skólastarfs. Ekki liggja fyrir upplýsingar um með hvaða hætti skólar koma til móts við þarfir einstakra nemenda en stuðningurinn á að felast í sveigjanlegu og margbreytilegu námsumhverfi og kennsluháttum sem ætlað er að mæta þörfum allra nemenda, drengja sem stúlkna. Í grunnskólum skal útbúa móttökuáætlun fyrir nemendur með sérþarfir, þar sem m.a. er gerð grein fyrir samstarfi innan skólans um skipulag kennslu, aðbúnaði, aðstöðu, notkun hjálpartækja, skipulagi einstaklingsnámskrár, kennsluháttum og námsmati, hlutverki umsjónarkennara, sérkennara og annarra fagaðila innan skólans og samstarfi við foreldra. Þá skal jafnframt árlega vinna áætlun um stuðning í námi og kennslu í samræmi við metnar sérþarfir nemenda. Áætlunin skal taka til heildarskipulags náms og stuðnings við nemendur með sérþarfir og tala til annarrar þjónustu við nemendur með fötlun. Stuðningur við nemendur byggist á athugunum, greiningu og ráðgjöf starfsfólks skóla og skólaþjónustu sveitarfélaga og annarra fagaðila sem koma að málefnum viðkomandi nemenda.
    Niðurstöður úttektar á framkvæmd stefnu um menntun fyrir alla á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, sem framkvæmd var af Evrópumiðstöð um nám án aðgreiningar og sérþarfir, voru birtar í skýrslu árið 2016. Þar kemur m.a. fram að íslensk löggjöf og stefnumótun menntayfirvalda feli í sér stuðning við markmið og áherslur skólakerfis án aðgreiningar og séu í samræmi við alþjóðlega sáttmála og samninga sem Ísland hefur undirgengist. Þar segir einnig að menntakerfið í heild sé almennt vel fjármagnað en endurhugsa þurfi úthlutun fjármagnsins þannig að það styðji betur við stefnuna um menntun fyrir alla þegar til lengri tíma er litið. Hærra hlutfalli heildarfjárveitinga en annars staðar gerist er varið til þess að sinna nemendum með sérþarfir á grunnskólastigi. Samkvæmt niðurstöðum úttektarinnar eru 16,33% nemenda á Íslandi með formlegar greiningar í samanburði við 4,44% að meðaltali 30 Evrópulanda. Ráðuneytið hefur undanfarna mánuði verið í samstarfsverkefni með 13 sveitarfélögum hér á landi um endurskoðun fjármögnunar grunnskólakerfisins og mun skýrsla um niðurstöður þess verkefnis verða birt innan tíðar. Markmiðið er að allir nemendur njóti hágæða námstækifæra í heimabyggð með því að vinna markvisst að því að fjárframlög sem áður voru nýtt í úrbótaskyni verði í auknum mæli nýtt í íhlutunar- og forvarnarstarf.
    Einnig liggur fyrir nýleg úttekt á starfsemi Brúarskóla í Reykjavík og skólinn vinnur að umbótum í samræmi við niðurstöður úttektarinnar.
    Hagstofan Íslands heldur utan um upplýsingar um nemendur í leik- og grunnskólum sem njóta sérstaks stuðnings í námi. Með sérstökum stuðningi er átt við nemendur sem vegna fötlunar, tilfinningalegra eða félagslegra erfiðleika fá sérstaka aðstoð eða þjálfun undir handleiðslu sérfræðinga.


Börn í leikskólum sem nutu sérstaks stuðnings 1998–2019.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Heimild: Hagstofa Íslands.

Grunnskólanemendur sem njóta sérkennslu eða stuðnings 2010–2019.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Hagstofa Íslands.

Sérkennslunemendur með formlega greiningu og stuðning til íslenskunáms 2010–2019.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Hagstofa Íslands.

    Í 33. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, segir að allir nemendur í framhaldsskóla eigi rétt á kennslu við sitt hæfi í hvetjandi námsumhverfi í viðeigandi húsnæði sem tekur mið af þörfum þeirra og almennri vellíðan. Í 1. mgr. 34. gr. segir að veita skuli nemendum með fötlun, sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992, og nemendum með tilfinningalega eða félagslega örðugleika kennslu og sérstakan stuðning í námi. Látin skal í té sérfræðileg aðstoð og viðeigandi aðbúnaður eftir því sem þörf krefur og jafnframt segir í 2. mgr. 34. gr. að ráðherra geti í samningi við framhaldsskóla heimilað rekstur sérstakra námsbrauta við framhaldsskóla fyrir nemendur með fötlun.
    Sérkennsla á starfsbrautum fyrir fatlaða nemendur í framhaldsskólum er veitt á grundvelli greininga á fötlun, svo sem þroskahömlun og viðlíka.
    Samkvæmt 6. mgr. 19. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006, skulu háskólar veita fötluðum nemendum, sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992, og nemendum með tilfinningalega eða félagslega örðugleika kennslu og sérstakan stuðning í námi. Látin skal í té sérfræðileg aðstoð og viðeigandi aðbúnaður eftir því sem þörf krefur. Kveðið er á um að fatlaðir nemendur skuli stunda nám við hlið annarra nemenda eftir því sem kostur er. Háskólar skuli jafnframt leitast við að veita þeim nemendum sérstakan stuðning sem eiga við sértæka námsörðugleika að stríða eða veikindi.
    Háskóli Íslands starfrækir ráð um málefni fatlaðs fólks. Eitt af hlutverkum þess er „að afla tölulegra upplýsinga og birta skýrslu um málaflokkinn á þriggja ára fresti;“, þ.e. um stuðning og úrræði sem nemendur með fötlun, greiningar og sjúkdóma fá við Háskóla Íslands. Ráð um málefni fatlaðs fólks lét gera reglulegar skýrslu sem svo runnu saman við Skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála við HÍ. 1
    Þá má nefna að í undirbúningi er skýrsla um stöðu og þróun jafnréttismála. Gerðar hafa verið kannanir á afdrifum nemenda við HÍ og nefna má að í gangi eru rannsóknarverkefni um stöðu doktorsnema.
    Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands sér um að veita háskólanemendum með fötlun, sjúkdóma og greiningar stuðning og úrræði í námi og prófum, en sérkennsla er ekki hluti af úrræðunum sem eru í boði. Öll úrræði í námi og prófum miðast við greiningar og/eða gögn frá sérfræðingum.
    Kynjahlutfall nemenda við Háskóla Íslands sem fá stuðning og úrræði í námi og prófum hefur í grófum dráttum verið 25% karlar og 75% konur undanfarin misseri (kynjahlutfall nemenda við HÍ er nú 32% karlar og 68% konur). Fjölmennustu hóparnir eru háskólanemendur sem fá þjónustu vegna lesblindu (dyslexiu) eða eru með athyglisbrest (með eða án ofvirkni) og þar hefur kynjaskipting verið svipuð. Fleiri karlkyns en kvenkyns nemendur á einhverfurófi fá stuðning og úrræði í námi og prófum.
    Árið 2010 voru 56 nemendur sem fengu úrræði í námi og prófum við Háskóla Íslands vegna athyglisbrests (með eða án ofvirkni), Tourette og fleira. Árið 2015 var fjöldi þessar nemenda kominn í 174 auk þess sem 15 nemendur til viðbótar fengu úrræði vegna einhverfurófs. Árið 2019 voru 292 háskólanemendur með úrræði í námi og prófum vegna athyglisbrests (með eða án ofvirkni), Tourette og fleira og 30 nemendur á einhverfurófi fengu úrræði í námi og prófum.
    Fjallað er um málefni fatlaðs fólks við HÍ í jafnréttisskýrslum. Umfjöllum um sérúrræði í námi o.fl. 2
    Gefnir hafa verið út bæklingar um fötlun og háskólasamfélagið. 3


     4.      Hvaða rannsóknir leggur ráðherra til grundvallar við mat á því hvort og þá hvernig skólastarf, skipulag þess og framkvæmd hefur á heilsufar pilta og stúlkna, framtíðarsýn og sjálfsvígstíðni? Hverjar eru helstu niðurstöður umræddra rannsókna?
    Samkvæmt lögum um leik, grunn- og framhaldsskóla ber mennta- og menningarmálaráðuneyti að fylgjast með gæðum skólastarfs m.a. til að tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til 2030, sérstaklega heildarmarkmiði 4 um menntun fyrir alla. Þessu er framfylgt með greiningu og miðlun upplýsinga um skólahald á grundvelli upplýsinga frá sveitarfélögum og skólum og með sjálfstæðri gagnaöflun.
    Ráðuneytið nýtir enn fremur niðurstöður ýmissa rannsókna og skýrslna starfshópa í stefnumótun um menntun. Má þarf t.d. nefna úttekt á menntun fyrir alla, sem áður hefur verið vísað til í svari þessu og ýmsum greinargerðum sem gerðar hafa verið í kjölfar úttektarinnar, niðurstöður rannsóknar á högum barna og ungmenna í grunn- og framhaldsskólum (Rannsóknir og greining, Ungt fólk), niðurstöður úr vinnu Velferðarvaktar, niðurstöður úr alþjóðlegri könnun HBSC um heilsu og lífskjör grunnskólanemenda og skýrsla starfshóps á vegum embættis landlæknis um innleiðingu geðræktarstarfs, forvarna og stuðnings við börn og ungmenni í skólum á Íslandi. Einnig má nefna nýlega rannsókn Háskólans á Akureyri um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla: Stefna, umgjörð, fjármögnun og starfshættir. Markmið rannsóknarinnar var að öðlast heildstæða mynd af umgjörð og starfsháttum skólaþjónustu sveitarfélaga og hvernig þau standa að því að tryggja skólum sínum þann aðgang að skólaþjónustu sem þeim ber samkvæmt lögum. Rýnt verður sérstaklega í ólíkar aðstæður eftir landshlutum hvað varðar aðgengi að þjónustu og hvort það hafi mögulega áhrif á jafnræði barna til náms.
    Samantekið má segja að niðurstöður framangreindra rannsókna og skýrslna dragi fram að heilbrigður lífsstíl einkenni meirihluta nemenda í efstu bekkjum grunnskóla á Íslandi.
    Meirihluti nemenda í efstu bekkjum grunnskóla metur andlega og líkamlega heilsu sína mjög góða eða góða þó að hlutfall þeirra nemenda sem telja andlega heilsu sína slæma hafi hækkað, sé horft til niðurstaðna fyrri ára. Samvera foreldra og barna eftir skóla á virkum dögum sem og um helgar hefur aukist hlutfallslega eftir að það dró úr slíkum samverustundum árið 2018.
    Íslenskum grunnskólanemendum líður almennt vel í skólanum og þeir treysta kennurum sínum vel. Þeim líkar betur í skólanum en jafnöldrum þeirra í öðrum löndum og munurinn verður enn meiri eftir því sem líður á skólagönguna. Hins vegar sýna niðurstöður jafnframt að líðan þeirra er háð námsárangri, því verr sem nemendum gengur, þeim mun ólíklegra er að þeim líði vel í skólanum. Ekki fannst í HBSC-könnuninni tölfræðilega marktækur munur á líðan nemenda í skóla eftir kynjum.
    Gögnin sýna fram á tengsl þess að vera lagður í einelti og hugsunar um sjálfsvíg og að þeir sem leggja aðra í einelti hugsa meira um fremja sjálfsvíg heldur en fórnarlömb þeirra gera. Þeir sem eru bæði gerendur og þolendur hugsa mest um að taka eigið líf.
    Niðurstöður staðfesta að styrkleikar felast í því að búið er að festa í lög og reglugerðir, ýmis ákvæði um forvarnir og snemmbæran stuðning fyrir nemendur. Ýmis úrræði eru nú þegar í boði fyrir börn og ungmenni sem þurfa aðstoð vegna sálfélagslegra erfiðleika. Rík áhersla er lögð á geðheilsu og vellíðan í aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla og almenn samstaða um það í samfélaginu að hlúa eigi vel að börnum og ungmennum og að nám skuli vera fyrir alla. Tækifæri til umbóta felast í að styrkja enn frekar umgjörð, skipulag og innviði skólakerfisins til að sinna geðrækt, forvörnum og stuðningi við nemendur og nýta gögn og árangursmælingar með markvissari hætti til að efla geðræktarstarf og skólabrag.
    Rannsóknin Ungt fólk 2020, um hagi og líðan framhaldsskólanema, sýnir að andlegri líðan nemenda í framhaldsskólum hefur hrakað verulega á liðnum árum, einkum líðan stúlkna. Sú þróun hefur átt sér stað undanfarin áratug en frá 2010 hefur hlutfall þeirra minnkað jafnt og þétt sem töldu andlega heilsu sína vera góða eða mjög góða.
    Yfirgnæfandi meirihluti framhaldsskólanema eða 76–78% töldu andlega heilsu sína mjög góða eða góða árin 2004–2010 en frá þeim tíma hefur hlutfallið jafnt og þétt minnkað og voru einungis 46% þeirra sem telja andlega heilsu sína vera góða eða mjög góða árið 2020. Myndin hér að neðan sýnir þannig umtalsverða fækkun í þeim hópi nemenda sem segja andlega líðan sína góða eða mjög góða og hefur sú þróun staðið yfir í um áratug.

Hlutfall framhaldsskólanema sem telja andlega heilsu sína mjög góða eða góða.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Rannsóknir & greining.

    Að mati ráðuneytisins er brýnt að efla enn frekar tengsl rannsókna og stefnumótunar á sviði menntunar og af því tilefni m.a. hefur ráðuneytið sem hluta af menntaumbótaaðgerðum til næstu ára gert ráð fyrir stofnun nýs menntarannsóknarsjóðs. Við úthlutun úr sjóðnum, sem ráðgert er að verði á vormánuðum, verður lögð áhersla á hagnýtar rannsóknir á skóla- og frístundastarfi.
    Fyrir Alþingi liggur nú þingsályktunartillaga um menntastefnu til ársins 2030. Framtíðarsýn menntastefnunnar byggist á einkunnarorðunum framúrskarandi menntun alla ævi og eru helstu gildi hennar þrautseigja, hugrekki, þekking og hamingja. Menntastefnan byggist á fimm stoðum sem styðja við framtíðarsýnina og gildin en þær eru: Jöfn tækifæri fyrir alla, kennsla í fremstu röð, hæfni fyrir framtíðina, vellíðan nemenda og að gæði verði í forgrunni. Horft er sérstaklega til þess að allir fái jafngild tækifæri til náms á forsendum hvers einstaklings óháð búsetu, aldri, kyni, kynhneigð, menntun, uppruna, efnahag, fötlun og stöðu. Einnig er lögð áhersla á snemmbæran stuðning og forvarnir sem fela í sér að gripið er til aðgerða annaðhvort snemma í lífi barns eða um leið og upp koma aðstæður þar sem ljóst er að nemandi þarfnast stuðnings af einhverju tagi. Stuðningurinn getur beinst að nemandanum sjálfum eða umhverfi hans. Lögð er áhersla á vellíðan nemenda og að nám og námsumhverfi höfði til allra nemenda frá upphafi skólagöngu óháð kyni, aldri, uppruna, búsetu, styrkleikum eða þörfum og styðji við hæfni til framtíðar. Gerðar verða væntingar til nemenda þar sem áhersla verður á að skólar og fræðsluaðilar taki mið af þörfum, getu og hæfni nemenda á einstaklingsbundinn hátt. Með því að gefa áhugasviðum þeirra aukið rými í skóla- og fræðslustarfi gefast tækifæri til að vinna út frá styrkleikum og áhuga hvers og eins og vinna gegn neikvæðum samskiptum og ofbeldi af öllu tagi.
    Óhætt er að segja að með innleiðingu menntastefnu til ársins 2030 felist mýmörg tækifæri til umbóta í þágu bætts árangurs og stöðu nemenda, pilta sem stúlkna. Menntastefnan er afrakstur víðtæks samráðs við fjölmarga hagsmunaaðila á sviði menntunar og velferðar barna og ungmenna og byggist á niðurstöðum rannsókna, þekkingar og reynslu undanfarinna ára. Meðal annars með hliðsjón af fyrirliggjandi vitneskju um ólíka stöðu pilta og stúlkna í menntakerfinu hefur nú þegar verið skipaður starfshópur til að greina leiðir til að minnka brotthvarf, bæta námsárangur og stuðla að aukinni vellíðan í námi. Verður það t.d. gert með því að greina starfs- og kennsluhætti í skólum hér á landi og með hvaða hætti komið er til móts við ólíkar þarfir pilta og stúlkna. Hópurinn mun skila tillögum sínum fyrir árslok 2021.


1     www.hi.is/haskolinn/rafraent_efni
2     www.hi.is/sites/default/files/atli/baeklingar/jafnretti/malefni_fatlads_folks_2010_2013.pdf
     www.hi.is/sites/default/files/atli/baeklingar/jafnretti/malefni_fatlads_folks_2007-2009.pdf
     www.hi.is/sites/default/files/atli/baeklingar/jafnretti/malefni_fatladra_2002-2006.pdf
     www.hi.is/sites/default/files/atli/pdf/skyrslur/stada_og_throun_jafnrettismala_2012-2016.pdf
3     www.hi.is/sites/default/files/atli/baeklingar/jafnretti/o-fotlun.pdf
     www.hi.is/sites/default/files/atli/baeklingar/jafnretti/haskoli-fyrir-alla.pdf