Ferill 805. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1487 — 805. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um aðgerðir gegn áfengis- og vímuefnavanda.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hefur ráðuneytið skipað vinnuhóp með fulltrúum helstu aðila sem sinna áfengis- og vímuefnavörnum líkt og lagt er til í skýrslu embættis landlæknis frá júní 2020 um vanda vegna áfengis og/eða annarra vímuefna: Bið eftir heilbrigðisþjónustu?
2. Er hafin söfnun viðeigandi gagna með aðferð miðstöðvar Evrópu í vímuefnamálum (EMCDDA), Treatment Demand Indicator (TDI), eða sambærilegum viðmiðum til að geta betur metið þörf fyrir þjónustu á hverjum tíma?
3. Hefur verklag við mat á þörf einstaklinga fyrir þjónustu með greiningarviðtali verið samræmt?
4. Hafa viðmið og verklag við skráningu einstaklinga á miðlægan biðlista eftir þjónustu verið samræmd?
5. Hver er staðan á vinnu við stefnu í áfengis- og vímuefnavörnum? Hefur hún verið endurskoðuð og til hversu langs tíma gildir sú stefna?
6. Verður í stefnu í áfengis- og vímuefnavörnum sett heildstætt viðmið um þjónustu og meðferð á sviði áfengis- og vímuefnameðferðar sem byggist á alþjóðlegum stöðlum?
Skriflegt svar óskast.