Ferill 516. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1490  —  516. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur um stuðning og sérkennslu í grunnskólum.

    


1.      Hversu margir sérkennarar eru starfandi í grunnskólum landsins og hversu margir þeirra koma beint að kennslu barna með sérþarfir? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum og kyni sérkennara.
    Samkvæmt lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, ber sveitarfélögum að tryggja að skipulag skólastarfs í grunnskólum taki mið af því að komið sé til móts við námsþarfir nemenda í almennum grunnskóla án aðgreiningar og án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis. Allir nemendur grunnskóla eiga rétt á kennslu við hæfi í hvetjandi námsumhverfi sem tekur mið af þörfum þeirra og almennri vellíðan. Til að mæta þessari ábyrgð hafa grunnskólar á að skipa fjölbreyttum hópi kennara og sérfræðinga. Hver nemandi skal hafa umsjónarkennara sem fylgist náið með námi nemenda sinna og þroska, líðan og almennri velferð, leiðbeinir þeim í námi og starfi, aðstoðar og ráðleggur þeim um persónuleg mál og stuðlar að því að efla samstarf skóla og heimila.
    Reglugerð nr. 585/2010, um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla, með síðari breytingum, sem tekur til nemenda sem þurfa sérstakan stuðning í námi í samræmi við metnar sérþarfir, kveður á um að stuðningi við nemendur með sérþarfir skuli sinnt af umsjónarkennara, sérkennara eða öðrum kennurum eftir því sem við verður komið. Því getur verið um að ræða sérkennara og aðra fagaðila sem hafa sérmenntun til þess að veita sérstakan stuðning í námi og sinna ráðgjöf til umsjónarkennara og annarra grunnskólakennara en einnig getur verið um að ræða aðra fagaðila, m.a. þroskaþjálfa, náms- og starfsráðgjafa og þá sem starfa við skólaþjónustu skóla og sérfræðistofnanir.
    Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands, sem aflar og birtir upplýsingar um starfsfólk grunnskóla eftir starfsheiti, stöðugildi og kyni, störfuðu 474 sérkennarar í alls 430 stöðugildum við grunnskóla hér á landi árið 2019. Við sundurliðun eftir kyni kemur í ljós að þar af voru 432 konur í 389 stöðugildum og 42 karlmenn í 41 stöðugildi. Vegna persónuverndarsjónarmiða veitir Hagstofan eingöngu upplýsingar um skiptingu sérkennara og stöðugilda eftir kyni niður á landsvæði og því eru upplýsingarnar settar fram í aðskildum töflum sem fylgja í viðauka. Þar koma annars vegar fram upplýsingar um heildarfjölda sérkennara og stöðugildi, óháð kyni, sundurliðað eftir sveitarfélögum (tafla 1) og hins vegar um heildarfjölda sérkennara og stöðugilda, sundurliðað eftir kyni og landsvæðum (tafla 2).
    Gera má ráð fyrir því að í fámennari sveitarfélögum, þar sem ekki er fyrir hendi sérstakt stöðugildi sérkennara, sé stuðningur og kennsla nemenda með sérþarfir á ábyrgð umsjónarkennara viðkomandi nemenda, jafnvel á hendi teymis viðeigandi fagaðila.
    Í úttekt Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir sem unnin var árið 2017 fyrir mennta- og menningarmálaráðuneyti um framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi kom fram að flestir í skólasamfélaginu væru á einu máli um að menntun án aðgreiningar varðaði alla nemendur, ekki aðeins tiltekna hópa með sérþarfir. Einnig kom fram sá skilningur að undir menntun án aðgreiningar falli allt starf í hverjum skóla og að allir nemendur og allt starfsfólk væru þátttakendur í breiðu lærdómssamfélagi.

2.      Hversu margir sérkennarar sinna ráðgjöf til kennara, nemenda og foreldra/forráðamanna?
    Fyrrgreind reglugerð nr. 585/2010, um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla, með síðari breytingum, gerir ráð fyrir því að sérkennarar og aðrir fagaðilar sem hafa sérmenntun til að veita sérstakan stuðning í námi sinni ráðgjöf til umsjónarkennara og annarra grunnskólakennara. Því má draga þá ályktun að flestir þeirra 474 sérkennara sem störfuðu við grunnskóla hér landi árið 2019 sinni ráðgjöf til kennara, nemenda og foreldra eða forráðamanna samhliða því að sinna námi og kennslu nemenda sem vegna sérþarfa njóta sérstaks stuðnings í námi.

3.      Hversu margir stuðningsfulltrúar eru starfandi í grunnskólum landsins og hversu margir þeirra koma beint að stuðningi barna með sérþarfir? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum og kyni stuðningsfulltrúa.
    Árið 2019 var starfandi 1.161 stuðnings- og uppeldisfulltrúi við grunnskóla landsins í alls 885 stöðugildum. Þar af var 901 kona í 687 stöðugildum og 260 karlar í 198 stöðugildum. Í ljósi þess að Hagstofan aflar upplýsinga um fjölda stuðnings- og uppeldisfulltrúa samtímis og birtir sem eina heild óskaði ráðuneytið eftir nánari skýringum á greinarmun þessara tveggja starfsheita og á hverju hann byggist. Samkvæmt skilgreiningum Hagstofunnar felst starf stuðningsfulltrúa einkum í stuðningi við andlega og líkamlega fatlaða nemendur og gjarnan í samstarfi við þroskaþjálfa en starf uppeldisfulltrúa er hins vegar einkum fólgið í almennri aðstoð við umsjónarkennara og má gera ráð fyrir því að fleiri nemendur en aðeins þeir sem hafa formlega greiningu njóti góðs af aðkomu uppeldisfulltrúa í námi sínu.
    Vegna persónuverndarsjónarmiða, líkt og í tilfelli sérkennara, veitir Hagstofan eingöngu upplýsingar um skiptingu stuðningsfulltrúa og stöðugilda eftir kyni niður á landsvæði og því eru upplýsingarnar settar fram í aðskildum töflum sem birtar eru í viðauka. Þar koma upplýsingar um annars vegar heildarfjölda stuðningsfulltrúa og stöðugilda, óháð kyni, sundurliðað eftir sveitarfélögum (tafla 3) og hins vegar heildarfjölda stuðningsfulltrúa og stöðugilda, sundurliðað eftir kyni og landsvæðum (tafla 4).
    Heildarfjöldi kennslustunda sem sinnt var af hálfu sérkennara eða stuðningsfulltrúa skólaárið 2019–2020 var 61.249, þar af voru 21.655 kennslustundir í höndum sérkennara og 39.594 kennslustundir í höndum stuðningsfulltrúa. Tekið skal fram að mismunandi getur verið hve margar sérkennslustundir hver og einn nemandi hefur þörf fyrir, í einhverjum tilfellum getur nemandi þurft á að halda tímabundnum stuðningi í tiltekinni námsgrein í skamman tíma meðan aðrir nemendur hafa þörf fyrir stuðning eða sérkennslu alla grunnskólagönguna. Ekki hafa allir þeir nemendur sem falla undir umræddan kennslustundafjölda formlega greiningu og gefur því heildarkennslustundafjöldi ákveðnar vísbendingar um að nemendum sé veittur snemmbær stuðningur.

4.      Hversu margir nemendur eru með sérþarfir? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum og kyni nemenda.
    Skólaárið 2019–2020 voru grunnskólanemendur alls 46.254 og þar af nutu 14.412 nemendur í 1.–10. bekk sérkennslu eða stuðnings, þ.e. 31,2% nemenda á landsvísu þegar litið er bæði til drengja og stúlkna en greining eftir kyni sýnir að 36,9% af heildarfjölda eru drengir, eða 8.742, og 25,3% eru stúlkur, eða 5.670.
    Vegna persónuverndarsjónarmiða og í ljósi smæðar fjölmargra sveitarfélaga er kynjaskipting birt fyrir landið í heild en ekki brotið niður á sveitarfélög. Í viðauka koma fram upplýsingar um hvernig heildarfjöldi nemenda sem nýtur sérkennslu eða stuðnings skiptist eftir sveitarfélögum (tafla 5). Af 59 sveitarfélögum er 31 sveitarfélag með 50 eða færri nemendur sem njóta sérkennslu eða stuðnings en bent er á að í þremur fámennum sveitarfélögum eru umræddir nemendur fimm eða færri og eru þau sérstaklega stjörnumerkt.

5.      Hverjir eru fimm algengustu flokkar sérþarfa nemenda? Svar óskast sundurliðað eftir kyni nemenda.
    Hagstofa Íslands aflar ekki upplýsinga um mismunandi flokka sérþarfa nemenda en aflar hins vegar og birtir upplýsingar um fjölda sérkennslunemenda með formlega greiningu, fjölda nemenda sem njóta stuðnings til íslenskunáms og fjölda nemenda í sérdeildum.
    Fjöldi nemenda með formlega greiningu skólaárið 2019–2020 var 7.272, þar af var 4.701 drengur og 2.571 stúlka. Heildarfjöldi nemenda sem naut stuðnings til íslenskunáms var 3.448, eða 1.834 drengir og 1.614 stúlkur. Í sérdeild voru 328 drengir og 109 stúlkur, eða alls 437 nemendur.
    Upplýsingum um hvers kyns greiningar er að ræða er ekki aflað sérstaklega en undir yfirheitinu formlegar greiningar falla nemendur sem vísað hefur verið til sérfræðinga sem staðfest hafa með viðurkenndum þroskaprófum og greiningaraðferðum sérþarfir sem kalla á viðeigandi stuðning. Hér er því ekki um að ræða nemendur sem njóta tímabundins stuðnings í námi og hafa ekki formlega greiningu.
    Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur á undanförnum misserum lagt aukna áherslu á öflun og greiningu gagna sem varpa ljósi á starfsemi og rekstur skóla á öllum skólastigum þar sem mikilvægt er að kalla megi fram upplýsingar í rauntíma með aðgengilegum hætti. Markmið þess felst m.a. í því að miðla helstu lykiltölum í samræmdu notendaviðmóti, nýta betur fyrirliggjandi gögn og bæta tölfræðiupplýsingar sem gagnast ráðuneytinu í ákvarðanatöku og stefnumótun. Í því skyni er unnið að því að koma á rafrænu skráningarkerfi grunnskólanemenda sem gefur kost á að hægt verði að kalla fram staðfestar upplýsingar í rauntíma um börn á grunnskólaaldri sem eiga lögheimili hér á landi, í hvaða grunnskóla þau eru skráð og í hvaða sveitarfélagi þau eru búsett.


    Viðauki - Töflur

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.

















Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


         



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.