Ferill 675. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1500 — 675. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lagalega ráðgjöf.
1. Hvaða viðmið eru viðhöfð þegar ráðuneytið leitar eftir ráðgjöf til stofnana eða starfsmanna, þ.m.t. félaga í eigu starfsmanna, lagadeilda Háskólans á Akureyri (HA), Háskóla Íslands (HÍ), Háskólans í Reykjavík (HR) og Háskólans á Bifröst (Bifröst) sem gegna stöðu nýdoktora, háskólakennara, lektora, dósenta eða prófessora í fullu starfi og hlutastarfi, þ.m.t. starfsmenn í gesta- og rannsóknarstöðum?
Leitað er eftir utanaðkomandi sérþekkingu þegar nauðsyn ber til. Ávallt ber að gæta jafnræðis, hlutlægni, hagkvæmni og samkeppnissjónarmiða þegar leitað er utanaðkomandi sérfræðiráðgjafar, í samræmi við meginreglur sem fram koma í lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, og lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016. Um samninga sem gerðir eru til lengri tíma en eins árs samkvæmt heimild í 40. gr. laga um opinber fjármál gildir að auki reglugerð um undirbúning, gerð og eftirfylgni samninga um framkvæmdir, rekstur og afmörkuð verkefni, nr. 643/2018.
Í greinargerð Ríkisendurskoðunar frá 22. júní 2009, í tengslum við kaup ráðuneyta á utanaðkomandi ráðgjöf og annarri sérfræðiþjónustu, voru settar fram leiðbeiningar sem stuðst er við þegar þörf á utanaðkomandi ráðgjöf er metin. Líkt og fram kemur í svari ráðherra við fyrirspurn um sérverkefni fyrir ráðuneyti á 138. löggjafarþingi (þskj. 419, 196. mál) kom forsætisráðuneytið leiðbeiningunum á framfæri við önnur ráðuneyti með tilmælum um að þeim skyldi fylgt í hvívetna.
Gátlisti sem fylgdi leiðbeiningunum byggist á eftirfarandi meginatriðum:
– Ganga úr skugga um hvort nauðsynlega þekkingu sé að finna hjá ríkinu.
– Útbúa stutta en greinargóða verk- og markmiðalýsingu.
– Leggja mat á hugsanlegt umfang verkefnisins og kostnað við það.
– Meta hvort kaupin eru útboðsskyld.
– Rökstyðja val á ráðgjafa.
– Gera skriflegan samning við ráðgjafann um þjónustuna og þóknun fyrir hana.
– Fylgjast reglulega með vinnu ráðgjafans og hvort verkið er innan umsaminna tímamarka og fjárhagsáætlunar.
– Meta hvernig vinna ráðgjafanna nýtist og hvort hún hafi skilað þeim árangri sem vænst var.
Leitast er við að gæta framangreindra atriða við mat á þörf ráðuneytisins fyrir lagalega ráðgjöf. Einnig getur verið um að ræða ráðgjöf vegna verkefna sem eru sérlega umfangsmikil, með hliðsjón af verkefnastöðu starfsmanna, eða sem kalla á aðkomu óháðra sérfræðinga.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2017 um kaup ráðuneyta á sérfræðiþjónustu kom fram að helstu ástæður þess að ráðuneyti leita til utanaðkomandi aðila vegna sérfræðiráðgjafar séu af þrennum toga. Í fyrsta lagi tengdust þær skorti á mannskap til að sinna verkefnum, í öðru lagi skorti á dýpri sérfræðiþekkingu fyrir afmörkuð verkefni og í þriðja lagi sveiflum í verkefnaálagi.
2. Vegna hvers konar verkefna er leitað lagalegrar ráðgjafar hjá starfsmönnum og stofnunum lagadeilda háskólanna og hversu oft vegna hverrar tegundar verkefna?
Verkefni sem kalla á utanaðkomandi lögfræðiráðgjöf eru af ýmsum toga og ekki flokkuð eftir undirtegundum í skjala- og bókhaldskerfum ráðuneytisins. Í flestum tilvikum er um að ræða lagaleg úrlausnarefni á borð við undirbúning lagafrumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla, lögfræðilegar álitsgerðir og úttektir á lagalegu umhverfi.
3. Hversu mörg ráðgjafarverkefni, sem 1. tölul. lýtur að, hafa verið innt af hendi frá árinu 2018 og hversu mikið hefur verið greitt samtals fyrir ráðgjöfina á umræddu tímabili?
Samtals hafa verið greiddar 32.625.055 kr. fyrir ráðgjöf af því tagi sem vísað er til í 1. tölulið á umræddu tímabilinu frá 1. janúar 2018 til 31. mars 2021 vegna 11 verkefna. Greiðslur til prófessora sem hættir eru störfum og til rannsóknarprófessora falla ekki undir fyrirspurnina þar sem starfssambandi við háskóla er ekki fyrir að fara.
4. Hversu mikið hefur verið greitt fyrir verkefni sem vikið er að í 1. tölul. frá ársbyrjun 2018 og hversu mörg hafa verið innt af hendi af annars vegar starfsmönnum og hins vegar stofnunum:
a. lagadeildar HA,
b. lagadeildar HÍ,
c. lagadeildar HR,
d. lagadeildar Bifrastar?
Um heildarkostnað og fjölda verkefna vísast til svars við 3. tölulið. Algengasta tímagjald er 14.000 kr. án virðisaukaskatts en í einhverjum tilfellum er greitt fyrir fram ákveðið verð fyrir verkefni. Verkefnin sundurliðast sem hér segir:
| Verkefni | Ráðgjafi | Staða | Fjárhæð |
| Vegna ákvarðana um kjör forstöðumanna (2018) | RB bókhald og ráðgjöf ehf. (Hafsteinn Dan Kristjánsson) | Aðjúnkt við Háskóla Íslands | 125.000 |
| Endurskoðun stjórnarskrár (2018) | Ragnhildur Helgadóttir | Prófessor við HR | 382.200 |
| Endurskoðun stjórnarskrár (2018, 2019, 2020) | Eiríkur Jónsson | Prófessor við HÍ | 4.975.000 |
| Endurskoðun stjórnarskrár (2019) | Margrét Einarsdóttir | Prófessor við HR | 716.000 |
| Vegna frumvarps um varnir gegn hagsmunaárekstrum (2019) | Elín Ósk Helgadóttir | Aðjúnkt við HR | 1.021.500 |
| Endurskoðun stjórnarskrár (2019) | Aðalheiður Jóhannsdóttir | Prófessor við HÍ | 612.500 |
| Vegna sameiningar SÍ og FME (2019) | RB bókhald og ráðgjöf ehf. (Hafsteinn Dan Kristjánsson) | Aðjúnkt við Háskóla Íslands | 81.375 |
| Vegna greinargerðar bankaráðs SÍ frá 21. febrúar 2019 (2019) | RB bókhald og ráðgjöf ehf. (Hafsteinn Dan Kristjánsson) | Aðjúnkt við Háskóla Íslands | 124.000 |
| Endurskoðun stjórnarskrár (2019) | RB bókhald og ráðgjöf ehf. (Hafsteinn Dan Kristjánsson) | Aðjúnkt við Háskóla Íslands | 496.000 |
| Vegna jarðalagafrumvarps (2019, 2020) | Eyvindur G. Gunnarsson slf. (Eyvindur G. Gunnarsson) | Prófessor við HÍ | 3.762.000 |
| Endurskoðun stjórnarskrár (2019, 2020) | Björg Thorarensen | Prófessor við HÍ | 870.000 |
| Vegna frumvarps til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og frumvarps um stjórnsýslu jafnréttismála (2020) | Brynhildur G. Flóvenz | Dósent við HÍ | 560.000 |
| Vegna frumvarps um börn sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni (2020) | Kári Hólmar Ragnarsson | Lektor við HÍ | 742.000 |
| Stýrihópur um jarðamál (2020, 2021) | Eyvindur G. Gunnarsson slf. (Eyvindur G. Gunnarsson) | Prófessor við HÍ | 280.500 |
| Vegna jarðalagafrumvarps (2019, 2020, 2021) | Hodos slf. (Friðrik Árni Friðriksson Hirst) | Framkvæmdastjóri Lagastofnunar HÍ | 6.336.000 |
| Stýrihópur um jarðamál (2020, 2021) | Hodos slf. (Friðrik Árni Friðriksson Hirst) | Framkvæmdastjóri Lagastofnunar HÍ | 6.517.500 |
| Endurskoðun stjórnarskrár (2021) | Hodos slf. (Friðrik Árni Friðriksson Hirst) | Framkvæmdastjóri Lagastofnunar HÍ | 907.500 |
| Álitsgerð vegna vinnumarkaðsmála (2020) | Elín Blöndal | Aðjúnkt við Háskólann á Bifröst | 247.500 |
| Endurskoðun stjórnarskrár (2020) | Skúli Magnússon | Dósent við HÍ | 1.068.480 |
| Skýrsla um dómstóla og stjórnsýslunefndir (2021) | Kristín Benediktsdóttir | Dósent við HÍ | 2.800.000 |
5. Hvaða bókaútgáfu á sviði lögfræði hefur ráðuneytið styrkt frá árinu 2018 og hversu hár hefur styrkurinn verið fyrir hverja og eina útgáfu? Hvaða viðmið eru lögð til grundvallar við slíkar styrkveitingar?
Ráðuneytið hefur ekki styrkt bókaútgáfu á tímabilinu en árið 2019 gerði ráðuneytið samning við Rannsóknarstofu í stjórnsýslurétti við Lagastofnun Háskóla Íslands um styrk að fjárhæð 1.600.000 kr. á ári í þrjú ár til að framkvæma rannsóknir á íslenskum stjórnsýslurétti. Rannsóknirnar standa í tengslum við útgáfu á ritröð um stjórnsýslurétt undir ritstjórn dr. juris Páls Hreinssonar og Trausta Fannars Valssonar dósents.
Þá stóð ráðuneytið sjálft fyrir útgáfu á ritinu Stjórnsýslulögin 25 ára, sem gefið var út í bókarformi árið 2019 og hefur að geyma safn fræðilegra ritgerða um stjórnsýslulögin og framkvæmd þeirra.
Við mat á því hvort veittur er styrkur vegna útgáfu ritverka á þessu sviði er horft til faglegs gildis, ávinnings af viðkomandi verki almennt og með tilliti til málefnasviða ráðuneytisins, sem og fjárhagslegs svigrúms ráðuneytisins hverju sinni. Þá er horft til þess hvert sé eigið framlag umsækjanda og fjárhagsgrundvöllur verkefnis að öðru leyti. Enn fremur er gætt að ákvæðum 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, sbr. einnig reglugerð um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018.