Ferill 655. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1525  —  655. mál.




Svar


félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Gunnari Braga Sveinssyni um ráðgjafarþjónustu, verktöku og tímabundin verkefni.


     1.      Hver hefur verið kostnaður ráðuneytisins við hvers kyns ráðgjafarþjónustu frá 1. janúar 2018?
    Kostnaður félagsmálaráðuneytisins (FRN) frá 1. janúar 2019 til 31. mars 2021 er 94.020.901 kr. vegna kaupa á sérfræðiþjónustu og ráðgjöf. Í ársbyrjun 2019 var fyrrum velferðarráðuneyti (VEL) skipt upp í heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið. Kostnaður velferðarráðuneytisins fyrir árið 2018 er 54.967.342 kr. Heilbrigðisráðuneytið mun svara með sama hætti fyrir velferðarráðuneytið. Í svari við fyrirspurninni er einkum um að ræða „sérfræðiþjónustu I“ í bókhaldi aðalskrifstofu ráðuneytisins ásamt viðeigandi safnliðum. Ekki er tekinn með kostnaður vegna þýðenda og túlkaþjónustu og ekki er getið um aðkeypta þjónustu ráðningarfyrirtækja og hæfnisnefnda, tilfallandi aðkeypta fræðslu fyrir starfsfólk ráðuneytisins eða aðra tilfallandi þjónustu og ráðgjöf sem lýtur að rekstri ráðuneytisins og starfsmannahaldi. Eftirfarandi yfirlit sýnir kostnaðinn eftir árum og tegundarheiti.

Félagsmálaráðuneytið (FRN) 2019 2020 2021 Samtals
Viðskipta- og hagfræðingar, lögg. endurskoðendur og rekstrarráðgjafar 12.524.965 19.299.961 0 31.824.926
Lögfræðingar 4.157.123 7.533.307 0 11.690.430
Sálfræðingar og félagsfræðingar 4.367.842 4.649.980 0 9.017.822
Önnur sérfræðiþjónusta 14.735.685 26.183.288 568.750 41.487.723
35.785.615 57.666.536 568.750 94.020.901

Velferðarráðuneytið VEL 2018
Viðskipta- og hagfræðingar, lögg. endur-skoðendur og rekstrarráðgjafar 8.987.500
Lögfræðingar 2.572.500
Sálfræðingar og félagsfræðingar 469.200
Önnur sérfræðiþjónusta 42.938.142
54.967.342

     2.      Af hvaða fyrirtækjum eða einstaklingum hefur ráðgjafarþjónusta verið keypt á tímabilinu, hvenær hófst þjónustan og hvenær lauk henni, ef henni er lokið? Hve mikið hefur hverjum aðila verið greitt?
    Á framangreindu tímabili hefur ráðuneytið keypt sérfræðiþjónustu og ráðgjöf af eftirfarandi aðilum. Í bókhalds- og skjalakerfum ráðuneytisins er ekki greint á milli ráðgjafar og veittrar þjónustu í formi vinnuframlags og tekur svarið mið af því.


     1.      Capacent ehf. Ráðgjafarvinna á árunum 2019–2020 Samtals voru greiddar 4.363.757. kr. fyrir vinnuna.
     2.      Vottun hf. Sérfræðiþjónusta á árunum 2019–2021. Samtals greiddar 631.704 kr. fyrir vinnuna.
     3.      Sómastaðir slf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 1.350.500 kr. fyrir vinnuna.
     4.      Styrmir Erlingsson. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 282.275 kr. fyrir vinnuna.
     5.      Kara connect ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 6.000.000 kr. fyrir vinnuna.
     6.      Expectus ehf. Ráðgjafarvinna á árinu 2019. Samtals voru greiddar 1.519.896 kr. fyrir vinnuna.
     7.      HN Markaðssamskipti. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 168.000 kr. fyrir vinnuna.
     8.      Spectra ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 52.380 kr. fyrir vinnuna.
     9.      Hrafnhildur Kvaran. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 5.739.334 kr. fyrir vinnuna.
     10.      Stúdía ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 50.000 kr. fyrir vinnuna.
     11.      Viðunandi ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 5.358.000 kr. fyrir vinnuna.
     12.      Sigrún Ólafsdóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 909.900 kr. fyrir vinnuna.
     13.      KSA ehf. Ráðgjafavinna á árunum 2019–2020. Samtals voru greiddar 1.256.200 kr. fyrir vinnuna.
     14.      Ásgerður Kristín Gylfadóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 254.232 kr. fyrir vinnuna.
     15.      Jón Sigurðsson. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 316.200 kr. fyrir vinnuna.
     16.      Mediaevaland slf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 160.000 kr. fyrir vinnuna.
     17.      Ásgeir Sigurgestsson. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 532.000 kr. fyrir vinnuna.
     18.      Linda Hrönn Þórisdóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019.Samtals voru greiddar 200.000 kr. fyrir vinnuna.
     19.      Jarþrúður Þórhallsdóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 245.000 kr. fyrir vinnuna.
     20.      RR ráðgjöf ehf. Ráðgjafavinna á árunum 2019–2020. Samtals voru greiddar 3.299.315 kr. fyrir vinnuna.
     21.      Kolbeinn Hólmar Stefánsson. Ráðgjafavinna á árunum 2019–2020. Samtals voru greiddar 4.200.000 kr. fyrir vinnuna.
     22.      PricewaterhouseCoopers ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 209.250 kr. fyrir vinnuna.
     23.      Brandenburg ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 170.150 kr. fyrir vinnuna.
     24.      Move ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 3.500.000 kr. fyrir vinnuna.
     25.      Hrefna Friðriksdóttir. Sérfræðiþjónusta á árunum 2019–2021. Samtals voru greiddar 5.412.500. kr. fyrir vinnuna.
     26.      ENNEMM ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 1.364.740 kr. fyrir vinnuna.
     27.      Exton ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2019. Samtals voru greiddar 310.569 kr. fyrir vinnuna.
     28.      Innsýn samskipti slf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 5.687.310 kr. fyrir vinnuna.
     29.      HLH ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 8.170.000 kr. fyrir vinnuna.
     30.      Valtýr Björn Valtýsson. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 3.500.000 kr. fyrir vinnuna.
     31.      Ráður 2 ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtal voru greiddar 328.950 kr. fyrir vinnuna.
     32.      Tvist ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 1.819.125 kr. fyrir vinnuna.
     33.      Hugmyndir ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 2.594.411 fyrir vinnuna.
     34.      Góð samskipti ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 309.015 kr., fyrir vinnuna.
     35.      Staðlaráð Íslands. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 2.000.000 kr. fyrir vinnuna.
     36.      Rakel Dögg Óskarsdóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 975.000 kr. fyrir vinnuna.
     37.      Hagstofa Ísland. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 76.500 kr. fyrir vinnuna.
     38.      Ingibjörg Ólöf Ísaksen. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 169.488 kr. fyrir vinnuna.
     39.      Háskóli Íslands. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 9.156.300. kr. fyrir vinnuna.
     40.      Fremri ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 126.400 kr. fyrir vinnuna.
     41.      Jökull Sólberg ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 5.620.000 kr. fyrir vinnuna.
     42.      STC ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2020. Samtals voru greiddar 6.223.750 kr. fyrir vinnuna.
     43.      Steinar Júlíusson. Sérfræðiþjónusta á árinu 2021. Samtals voru greiddar 25.000 kr. fyrir vinnuna.
     44.      Trausti Fannar Valsson. Sérfræðiþjónusta á árinu 2021. Samtals voru greiddar 543.750 kr. fyrir vinnuna.

Velferðarráðuneytið 2018:
     1.      Attentus–Mannauður og ráð ehf. Ráðgjafarvinna á árinu 2018. Samtals voru greiddar 2.168.232 kr. fyrir vinnuna.
     2.      Brandenburg ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 486.900 kr. fyrir vinnuna.
     3.      Capacent ehf. Ráðgjafarvinna á árinu 2018. Samtals voru greiddar 142.205 kr. fyrir vinnuna.
     4.      Framkvæmdasýsla ríkisins. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 135.285 kr. fyrir vinnuna.
     5.      GI rannsóknir ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 189.000 kr. fyrir vinnuna.
     6.      Goðhóll ehf. Ráðgjafarvinna á árinu 2018. Samtals voru greiddar 412.100 kr. fyrir vinnuna.
     7.      Guðríður Þorsteinsdóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 720.000 kr. fyrir vinnuna.
     8.      Háskóli Íslands. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 1.000.000 kr. fyrir vinnuna.
     9.      Hjalti Axel Yngvason. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 140.363 kr. fyrir vinnuna.
     10.      Jarþrúður Þórhallsdóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 785.000 kr. fyrir vinnuna.
     11.      Líf og sál sálfræðistofa ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 469.200 kr. fyrir vinnuna.
     12.      NFP ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 70.000 kr. fyrir vinnuna.
     13.      Nilsina Larsen Einarsdóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 197.500 kr. fyrir vinnuna.
     14.      Ríkiskaup. Ráðgjafarvinna á árinu 2018. Samtals voru greiddar 919.318 kr. fyrir vinnuna.
     15.      Skúli Már Sigurðsson. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 79.500 kr. fyrir vinnuna.
     16.      Strategía ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 861.250 kr. fyrir vinnuna.
     17.      Stúdía ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 50.483 kr. fyrir vinnuna.
     18.      Tryggingastærðfræðistofa BG ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 248.000 kr. fyrir vinnuna.
     19.      Þekkingarmiðlun ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 100.000 kr. fyrir vinnuna.
     20.      Ásthildur Valtýsdóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 856.000 kr. fyrir vinnuna.
     21.      Expectus ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 6.517.575 kr. fyrir vinnuna.
     22.      Hagstofa Íslands. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 367.200 kr. fyrir vinnuna.
     23.      Kjartan Bjarni Björgvinsson. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 1.965.150 kr. fyrir vinnuna.
     24.      KPMG ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 6.410.200 kr. fyrir vinnuna.
     25.      Kristín Benediktsdóttir. Lögfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 2.572.500 kr. fyrir vinnuna.
     26.      KSA ehf. Ráðgjafarvinna á árinu 2018. Samtals voru greiddar 1.615.200 kr. fyrir vinnuna.
     27.      Tækninám slf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 1.173.700 kr. fyrir vinnuna.
     28.      Viðunandi ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 10.393.000 kr. fyrir vinnuna.
     29.      Sveinn Björnsson. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 52.500 kr. fyrir vinnuna.
     30.      Rún ráðgjöf ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 1.200.000 kr. fyrir vinnuna.
     31.      Hugsa sér ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 322.210 kr. fyrir vinnuna.
     32.      María Rún Bjarnadóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 120.000 kr. fyrir vinnuna.
     33.      Maskína-rannsóknir ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 350.000 kr. fyrir vinnuna.
     34.      Háskóli Íslands. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 883.871 kr. fyrir vinnuna.
     35.      Brynhildur G. Flóvenz. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 150.000 kr. fyrir vinnuna.
     36.      Finnur Torfi Gunnarsson. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 85.000 kr. fyrir vinnuna.
     37.      Helga Ólafs Ólafsdóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 600.000 kr. fyrir vinnuna.
     38.      CP Reykjavík ehf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 220.000 kr. fyrir vinnuna.
     39.      Jafnréttisstofa. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 8.987.500 kr. fyrir vinnuna.
     40.      Svandís Anna Sigurðardóttir. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 735.000 kr. fyrir vinnuna.
     41.      Vottun hf. Sérfræðiþjónusta á árinu 2018. Samtals voru greiddar 216.400 kr. fyrir vinnuna.

     3.      Hve marga samninga hefur ráðuneytið gert um kaup á ráðgjöf, hvenær voru þeir gerðir, við hverja og til hve langs tíma?
    Með kaupum á sérfæðiþjónustu kemst á samningur á milli þjónustuveitanda og ráðuneytisins. Um samningsaðila, fjölda samninga og samningstíma vísast því til svars við 2. tölul.

     4.      Hvaða fyrirtæki eða einstaklingar hafa þegið verktakagreiðslur frá 1. janúar 2018?
    Greiðslur fyrir utanaðkomandi sérfræðiþjónustu og ráðgjöf eru ætíð í formi verktakagreiðslna og vísast því til svars við 2. tölul.

     5.      Hvaða einstaklingar hafa verið ráðnir í tímabundin verkefni frá 1. janúar 2018? Hvaða verkefni voru þeir ráðnir í og hvaða verkefnum er lokið?
    Eftirfarandi tafla sýnir þá einstaklinga sem hafa verið ráðnir til tímabundinna verkefna á því tímabili sem fyrirspurnin tekur til.

Félagsmálaráðuneytið
Starfsmaður Verkefni Staða
Eygló Harðardóttir Samningar um aðstoð við þolendur ofbeldis og rekstur athvarfa. Lokið
Sigríður Finnbogadóttir Kynjuð fjárlagagerð Lokið

Velferðarráðuneytið
Starfsmaður Verkefni Staða
Anna Lilja Gunnarsdóttir, starfar fyrir bæði ráðuneytin HRN og FRN Sérstakur erindreki; starfar með fastanefndinni í Genf Ólokið
Oddfríður R. Þórisdóttir Norrænt samstarf Lokið
Þórdís Hadda Yngvadóttir Verkefnastjóri um jafnlaunavottun Lokið
Ingibjörg Ruth Gulin Vinna í jafnréttismálum og norrænt samstarf Lokið