Ferill 690. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1546  —  690. mál.
2. umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 25/2017 (tímabundnir gestaflutningar og vanræksluálag).

Frá umhverfis- og samgöngunefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ólaf Kr. Hjörleifsson og Jónas Birgi Jónasson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Jóhannes Svavar Rúnarsson frá Strætó bs., Valgerði Rún Benediktsdóttur og Guðjón Bragason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Daníel O. Einarsson frá Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra, Baldur Sigmundsson og Gunnar Val Sveinsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Jónas Guðmundsson sýslumanninn á Vestfjörðum.
    Nefndinni bárust umsagnir frá Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum ferðaþjónustunnar, Strætó bs. og sýslumanninum á Vestfjörðum.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 25/2017.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Lagðar eru til tvíþættar breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 25/2017. Annars vegar er um að ræða skilgreiningu á tímabundnum farþegaflutningum sem flutningsfyrirtæki með staðfestu í löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins starfrækja hér á landi gegn gjaldi á grundvelli bandalagsleyfis og hins vegar úrræði til eftirlits með greiðslu fargjalda í almenningssamgöngum til að opna fyrir og styðja skilvirkari lausnir við greiðslu fargjalda með það að markmiði að efla þjónustu við notendur.

Starfshópur um heildarlög um almenningssamgöngur.
    Fyrir nefndinni og í umsögnum var lögð áhersla á að mikilvægt væri að sett yrðu heildstæð lög um almenningssamgöngur þar sem skyldur og réttindi bæði flytjanda og farþega væru vel tryggð.
    Nefndin tekur undir þau sjónarmið og telur að í tengslum við framþróun almenningssamgangna á næstu árum sé æskilegt að mótuð verði sérstök lagaumgjörð um almenningssamgöngur, þar sem tekið væri tillit til notenda, flytjenda, samfélagslegs hlutverks almenningssamgangna og umhverfissjónarmiða. Beinir nefndin því til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis að hefja undirbúning að mótun slíkrar löggjafar, þ.m.t. að skipa starfshóp sem vinni tillögur að breyttu lagaumhverfi í þessa veru.

Breytingartillögur nefndarinnar.
Fargjaldaálag.
    Fyrir nefndinni var bent á að hugtakið vanræksluálag væri óþarflega líkt orði sem notað er yfir viðurlög sem þeir sæta sem færa ökutæki sín ekki til skoðunar innan tilskilins tíma og á hinn bóginn væri orðið ekki lýsandi fyrir gjald sem fyrirtækjum sem sinna almenningssamgöngum er heimilt að leggja ofan á fargjald, geti farþegi í almenningssamgöngum ekki sýnt fram á greiðslu rétts fargjalds þegar eftir því er leitað.
    Nefndin telur því rétt að nota hugtakið fargjaldaálag í stað vanræksluálags og leggur til breytingu þar að lútandi.

Starfsmaður á vegum flytjanda.
    Fyrir nefndinni var bent á að í einhverjum tilvikum væri það aðili á vegum flytjanda en ekki starfsmaður í beinu starfssambandi við flytjanda sem hefði það hlutverk að taka við fargjaldi, skoðaði skilríki o.s.frv. Í því sambandi hefur t.d. verið bent á að um geti verið að ræða starfsfólk öryggisfyrirtækis sem flytjandi fær sér til aðstoðar.
    Nefndin telur rétt að bregðast við þessu og leggur til að í stað þess að vísa til starfsmanns flytjanda í 1. og 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. frumvarpsins sé vísað til starfsmanns á vegum flytjanda.
    Þá vill nefndin árétta að starfsmaður á vegum flytjanda hefur ekki lögregluvald og frumvarpið hefur engar breytingar á slíkum heimildum í för með sér.

Persónuvernd.
    Í 6. gr. frumvarpsins er fjallað um vanræksluálag og getur beiting þess ákvæðis kallað á vinnslu persónuupplýsinga.
    Til að taka af allan vafa um heimildir flytjanda til vinnslu persónuupplýsinga vegna álagningar og innheimtu fargjaldaálags, leggur nefndin til að ný málsgrein bætist við 6. gr. þar sem fram kemur að flytjanda sé heimil nauðsynleg vinnsla persónuupplýsinga vegna álagningar og innheimtu fargjaldaálags samkvæmt greininni að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglum settum á grundvelli þeirra.

    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Í stað orðsins „vanræksluálags“ í 3. gr. komi: fargjaldaálags.
     2.      Við 6. gr.
                  a.      Í stað orðsins „vanræksluálag“ í fyrirsögn og hvarvetna annars staðar í greininni komi, í viðeigandi beygingarfalli: fargjaldaálag.
                  b.      Á eftir orðinu „starfsmaður“ í 1. og 2. málsl. 1. mgr. komi: á vegum.
                  c.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                     Flytjanda er heimil nauðsynleg vinnsla persónuupplýsinga vegna álagningar og innheimtu fargjaldaálags samkvæmt þessari grein að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglum settum á grundvelli þeirra.
     3.      Í stað orðsins „vanræksluálag“ í fyrirsögn frumvarpsins komi: fargjaldaálag.

    Hanna Katrín Friðriksson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Jón Gunnarsson og Vilhjálmur Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Alþingi, 28. maí 2021.

Bergþór Ólason,
form.
Líneik Anna Sævarsdóttir, frsm. Ari Trausti Guðmundsson.
Guðjón S. Brjánsson. Jón Gunnarsson. Karl Gauti Hjaltason.
    Kolbeinn Óttarsson Proppé. Vilhjálmur Árnason.