Ferill 725. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1552  —  725. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um sjúkrahótel Landspítala.


     1.      Hvert var áætlað rekstrarhagræði af sjúkrahóteli á sama reit þegar staðarval fyrir nýjan Landspítala var kynnt?
    Á árinu 2008 var gert mat á ávinningi þess að sameina starfsemi Landspítala á einum stað við Hringbraut. Sjúkrahótel við Landspítala var frá upphafi hluti af þeirri mynd og var þar litið til þeirrar þróunar sem átti sér stað á þeim tíma á stærstu sjúkrahúsum Norðurlanda, sem voru mörg að reisa slík hótel á sínum lóðum eða höfðu þegar gert. Í því mati var m.a. tekinn saman ávinningur af því að bæta til muna dag- og göngudeildir og sjúkrahótel og var hann metinn upp á 1 milljarð kr. Hvað varðar sjúkrahótel var það fyrst og fremst stytting legutíma sjúklinga sem gaf ábatann, en þjónustuform sjúkrahótels er annað og þar með rekstrarkostnaður mun lægri en á legudeildum. Með því að gera fólki utan af landi, t.d. ófrískum konum, kleift að sækja þjónustu á dag- eða göngudeild með gistingu á hóteli á lóð spítalans er kostnaður lækkaður þar sem þessir einstaklingar þurfa ekki að leggjast inn á legudeild. Ekki er til sundurliðun á þeim ábata sem metinn var á milli dag- og göngudeilda annars vegar og sjúkrahótels hins vegar.

     2.      Hvert hefur verið raunverulegt rekstrarhagræði Landspítala af hótelinu á ári frá því að það var opnað árið 2019?
    Ekki liggur fyrir núna mat á rekstrarhagræði nýja sjúkrahótelsins né var tími til þess að fara í ítarlega greiningu á því sökum tímaramma fyrirspurnar en ljóst er að ávinningur þess er mikill fyrir starfsemi spítalans, sjúklingastreymið (flæði), nýtingu legudeilda og sjúklingana sjálfa. Nýting rýma árið 2019 fór upp í 90% á virkum dögum en að meðaltali var hún í kringum 70%. Unnt hefur verið að útskrifa sjúklinga fyrr en ella og er það einn þáttur í því að tekist hefur að lækka meðallegutímann á spítalanum. Við það skapast svigrúm til innlagna annarra sjúklinga, styttingar biðtíma á bráðamóttöku og styttingar biðlista eftir þjónustu. Sólarhringsdvöl á sjúkrahóteli er margfalt ódýrari en á almennri deild eða bráðalegudeild og tekur gestur á hótelinu þátt í dvalar- og fæðiskostnaði.

     3.      Hver var endanlegur byggingarkostnaður sjúkrahótelsins með innréttingum og tækjum?
    Samkvæmt skilamati Nýs Landspítala ohf. var áfallinn kostnaður við byggingu sjúkrahótels og viðbótarverka 3.200.485.536 kr. á verðlagi hvers árs eða 2.387.008.828 kr. á verðlagi byggingarvísitölu 1987, 100 stig, sem er viðmiðunarvísitala samninga í samræmi við reglur Framkvæmdasýslu ríkisins, sbr. lög nr. 84/2001, um skipan opinberra framkvæmda.

     4.      Hver hefur rekstrarkostnaður sjúkrahótelsins verið á ári frá opnun þess? Óskað er eftir sundurliðun eftir launum og launatengdum gjöldum, húsnæðiskostnaði og öðrum kostnaði.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.