Ferill 724. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1554 — 724. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um kostnað við skimun fyrir brjóstakrabbameini.
1. Lá fyrir kostnaðaráætlun um flutning skimunar fyrir brjóstakrabbameini frá Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands til Landspítala? Ef svo er, hver var sú kostnaðaráætlun, skipt eftir húsnæðiskostnaði, tækjakaupum, launaútgjöldum og öðrum tilfallandi kostnaði?
Kostnaðarmat Landspítala vegna skimunar fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsspeglana barst ráðuneytinu dags. 11. september 2020 og eftir yfirferð ráðuneytisins var ákvörðuð fjárveiting vegna skimunar fyrir krabbameini í brjóstum samtals 107,3 millj. kr., sbr. eftirfarandi:
| Kostnaðarmat vegna skimunar fyrir krabbameini í brjóstum. | |
| Millj. kr. | |
| Húsnæði | 17,5 |
| Tæki og búnaður | 34,2 |
| Laun | 80,6 |
| Önnur gjöld | 38,3 |
| Samtals gjöld: | 170,6 |
| Rekstrartekjur | -63,3 |
| Fjárveiting til Landspítala: | 107,3 |
2. Hver var sambærilegur kostnaður Leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands við skimun fyrir brjóstakrabbameini árin 2010 til 2020, sundurliðaður á sama hátt?
Sjúkratryggingar Íslands hafa einungis undir höndum sundurliðun á kostnaði Krabbameinsfélags Íslands (KÍ) milli þjónustuþátta fyrir árið 2017. Sundurliðun á kostnaði milli deilda tekur mið af þáverandi starfsemi og samnýtingu sem var á milli deilda, bæði hvað varðar starfsfólk og búnað. Hópleit fyrir krabbameini í brjóstum tók á þeim tíma til sín 36% af fjárveitingu til KÍ, sjá eftirfarandi töflu:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Á fjárlögum fyrir árið 2017 var heildarfjárveiting til krabbameinsskimunar 400,4 millj. kr. Af þeirri fjárhæð voru 72,8 millj. kr. teknar til hliðar vegna klínískra brjóstaskoðana (sérskoðana), eða um 18% af heildarfjárveitingu ársins. Þetta var gert í tengslum við að ábyrgð á sérskoðunum á brjóstum var færð frá KÍ til Landspítala 1. janúar 2017. Þá stóðu eftir fyrrgreindar 327,6 millj. kr. en framangreind tafla er úr samkomulagi um framlengingu samnings við KÍ, dags 3. febrúar 2017.
Framangreindar 72,8 millj. kr. voru reiknaðar út frá kostnaðarskiptingu ársins 2016, en þá var heildarkostnaður 99,7 millj. kr. Sértekjur voru 29,9 millj. kr. og ríkisframlag 70 millj. kr. sem síðan voru reiknaðar upp til verðlags. Af heildarkostnaði ársins 2016 vegna sérskoðana á brjóstum voru launaútgjöld 77,9%, rekstur tölvukerfa og þjónusta við röntgenkerfi 11,7%, húsaleiga 3,0% og annar rekstrarkostnaður 7,4%.