Ferill 777. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1572  —  777. mál.




Svar


félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Sigurði Páli Jónssyni um töku sjómanna á ellilífeyri.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu margir sjómenn nýta sér rétt til töku ellilífeyris á aldrinum 60–67 ára sem í daglegu tali er kallaður sjómannalífeyrir?

    Í maí 2021 fengu 56 einstaklingar á aldrinum 60–67 ára greiddan sjómannalífeyri. Auk þeirra voru fjórir einstaklingar á þessum aldri sem uppfylltu skilyrði um rétt til sjómannalífeyris en fengu ekki greiddan lífeyri vegna hárra tekna.