Ferill 842. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1599  —  842. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um refsingar við vörslu neysluskammta fíkniefna og ölvun á almannafæri.

Frá Þorsteini Sæmundssyni.


     1.      Hversu margir afplána nú dóma í fangelsi vegna vörslu neysluskammta fíkniefna?
     2.      Hversu margir voru dæmdir til fangelsisvistar fyrir vörslu neysluskammta fíkniefna árlega árin 2010–2020?
     3.      Hver eru algengustu viðurlög við vörslu neysluskammta fíkniefna:
                  a.      fyrir fyrsta brot,
                  b.      vegna ítrekaðra brota?
     4.      Hversu margir hlutu dóma fyrir ölvun á almannafæri, sbr. 21. gr. áfengislaga, nr. 75/1998, árlega árin 2010–2020?
     5.      Hver eru algengustu viðurlög við brotum á 21. gr. áfengislaga?


Skriflegt svar óskast.