Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1829, 151. löggjafarþing 850. mál: þingsköp Alþingis (samkomudagur reglulegs Alþingis 2021).
Lög nr. 104 25. júní 2021.

Lög um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991 (samkomudagur reglulegs Alþingis 2021).


1. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 1. gr. skal 151. löggjafarþingi ljúka 25. september 2021 enda hafi þingrofi þá verið lýst skv. 24. gr. stjórnarskrárinnar. Skal reglulegt Alþingi 2021, 152. löggjafarþing, þá koma saman þegar forseti Íslands hefur stefnt saman Alþingi, sbr. 22. og 24. gr. stjórnarskrárinnar, og standa fram til reglulegs samkomudags Alþingis 2022, annars þriðjudags septembermánaðar það ár, sbr. 35. gr. stjórnarskrárinnar og 4. mgr. 1. gr. laga þessara.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 13. júní 2021.