Ferill 866. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1844  —  866. mál.




Svar


félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um átaksverkefni Vinnumálastofnunar.


     1.      Hversu mörg fyrirtæki hafa tekið þátt í átaksverkefninu Hefjum störf á vegum Vinnumálastofnunar?
    Á tímabilinu 1. mars til 23. júní 2021 hafa alls 2.679 atvinnurekendur auglýst starf í tengslum við átaksverkefnið Hefjum störf, þar af hafa 2.593 atvinnurekendur auglýst störf á almennum vinnumarkaði og 86 atvinnurekendur auglýst störf á opinberum vinnumarkaði. Á sama tímabili hafa alls 1.469 atvinnurekendur ráðið starfsmann á grundvelli átaksverkefnisins, þar af starfa 1.420 atvinnurekendur á almennum vinnumarkaði og 49 á opinberum vinnumarkaði.

     2.      Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir vegna átaksverkefnisins?
    Á tímabilinu 1. mars til 23. júní 2021 hafa alls 3.602 atvinnuleitendur verið ráðnir til starfa á grundvelli átaksverkefnisins Hefjum störf.

     3.      Hvað hafa þeir sem hafa verið ráðnir í tengslum við átaksverkefnið verið lengi á atvinnuleysisskrá, flokkað eftir fjölda mánaða sem hver og einn hefur verið skráður þar?
    Í meðfylgjandi töflu má sjá fjölda ráðninga á tímabilinu 1. mars til 23. júní 2021 í tengslum við átaksverkefnið Hefjum störf, greint eftir þeim tíma sem viðkomandi atvinnuleitendur hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun.


Tími án atvinnu Samtals
0-6 mánuðir
938
6-12 mánuðir 1.568
12-18 mánuðir 703
18-24 mánuðir 223
24-30 mánuðir 170