Ferill 839. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1852 — 839. mál.
Svar
félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um kostnað við ferðir ráðherra innan lands.
1. Hver var kostnaður vegna ráðherrabílstjóra, þ.e. laun, launatengd gjöld og annar kostnaður, á árunum 2017–2019?
Í velferðarráðuneytinu störfuðu tveir bílstjórar. Launakostnaður velferðarráðuneytisins (VEL) vegna ráðherrabílstjóra fyrir árið 2017 var 24.068.546 kr. og fyrir tímabilið 1. janúar 2018 til og með mars 2018 var launakostnaðurinn 6.072.396 kr. Í apríl 2018 fluttust ráðherrabílstjórarnir yfir til Umbru (þá Rekstrarfélag Stjórnarráðsins). Rekstrartölur frá apríl 2018 eru því fengnar úr bókhaldi Umbru. Kostnaður Umbru vegna félagsmálaráðuneytis er:
| 2018 (frá 1. apríl) | 11.928.552 kr. |
| 2019 | 18.862.315 kr. |
2. Hver var rekstrarkostnaður ráðherrabíls á árunum 2017–2019? Ef bílar voru fleiri en einn óskast svar sundurliðað.
Rekstur tveggja ráðherrabifreiða velferðarráðuneytisins færðist til Umbru (þá Rekstrarfélag Stjórnarráðsins) í apríl 2018 og eftir það hefur ráðuneytið ekki verið með bifreið í rekstri sínum. Eftirfarandi kostnaður ásamt afskriftum er skipt niður á ár. Ekki var hægt að skipta öllum kostnaði á milli bifreiða í bókhaldi og var því hluta hans skipt jafnt. Rekstrartölur frá apríl 2018 eru fengnar úr bókhaldi Umbru.
| Rekstrarkostnaður | 2017 | (jan.–mars) 2018 | (apríl–des.) 2018 | 2019 |
| Félagsmálaráðherra | 2.073.497 | 435.583 | 2.024.662 | 3.483.439 |
| Heilbrigðisráðherra | 2.002.529 | 256.475 | ||
| 4.076.026 | 692.058 | 2.024.662 | 3.483.439 |
Þess skal getið að félags- og barnamálaráðherra viðhefur það fyrirkomulag í hagræðingar- og sparnaðarskyni að aka alla jafna sjálfur á bílaleigubíl til og frá heimili sínu en nýtur akstursþjónustu Umbru í embættiserindum í Reykjavík.
3. Hver var gistikostnaður vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017–2019?
Í ársbyrjun 2019 var fyrrum velferðarráðuneyti (VEL) skipt upp í félagsmálaráðuneytið (FRN) og heilbrigðisráðuneytið (HRN). Í velferðarráðuneyti voru tveir ráðherrar. Í félagsmálaráðuneytinu sem varð til í ársbyrjun 2019 var dvalarkostnaður ráðherra innan lands með eftirfarandi hætti:
| VEL 2017 |
VEL 2018 |
FRN 2019 |
|
| Félagsmálaráðherra | 1.745 | 109.012 | 103.726 |
| Heilbrigðisráðherra | 56.267 | 33.622 |
4. Hverjar voru dagpeningagreiðslur vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017– 2019?
Ekki eru greiddir dagpeningar fyrir ferðir innan lands heldur er einungis greitt samkvæmt reikningi fyrir útlögðum kostnaði.
5. Hver var annar kostnaður vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017–2019?
| VEL 2017 |
VEL 2018 |
FRN 2019 |
|
| Félagsmálaráðherra | 134.829 | 322.044 | 335.900 |
| Heilbrigðisráðherra | 394.780 | 105.819 |