Ferill 891. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1872 — 891. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um skólasókn barna.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Um hversu mörg börn á grunnskólaaldri er óljóst hvort eða hvar þau stunda nám? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
2. Hverjar eru ástæður þess að umrædd börn sækja ekki skóla?
3. Hver ber ábyrgð á því að öll börn á grunnskólaaldri stundi nám og að gripið sé til ráðstafana ef í ljós kemur að svo er ekki?
Skriflegt svar óskast.