Ferill 838. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1926 — 838. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um kostnað við ferðir ráðherra innan lands.
1. Hver var kostnaður vegna ráðherrabílstjóra, þ.e. laun, launatengd gjöld og annar kostnaður, á árunum 2017–2019?
| 2017 | 2018 | 2019 | |
| Laun, launatengd gjöld og annar kostnaður | 13.028.074 | 14.709.310 | 13.971.861 |
Þann 1. apríl 2018 færðist rekstur bílstjóra og bifreiða til Umbru – rekstrarfélags Stjórnarráðsins og eru upplsýsingar um kostnað frá þeim tíma úr bókhaldi Umbru.
2. Hver var rekstrarkostnaður ráðherrabíls á árunum 2017–2019? Ef bílar voru fleiri en einn óskast svar sundurliðað.
| 2017 | 2018 | 2019 | |
| Rekstrarkostnaður bifreiðar | 3.039.653 | 3.215.293 | 3.483.439 |
3. Hver var gistikostnaður vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017–2019?
| 2017 | 2018 | 2019 | |
| Gistikostnaður | 199.996 | 191.281 | 10.233 |
4. Hverjar voru dagpeningagreiðslur vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017–2019?
Ráðuneytið greiðir ekki dagpeninga vegna ferða innan lands.
5. Hver var annar kostnaður vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017–2019?
| 2017 | 2018 | 2019 | |
| Flug | 552.444 | 1.497.550 | 1.698.245 |