Ferill 894. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1928  —  894. mál.




Svar


félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um hjálpartæki á vinnustað.


     1.      Telur ráðherra það standa atvinnuþátttöku fatlaðs fólks fyrir þrifum hvernig fjármögnun á nauðsynlegum hjálpartækjum á vinnustað er háttað?
    Í 1. mgr. 25. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, segir að sveitarfélögum sé heimilt að veita fötluðu fólki styrki eða fyrirgreiðslu vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar, þ.m.t. styrk til verkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni. Samkvæmt lögum eru það því sveitarfélög sem fjármagna kaup á hjálpartækjum á vinnustað í gegnum styrki sem þeim er heimilt, en ekki skylt, að úthluta til einstaklinga.
    Á grundvelli 25. gr. laga nr. 38/2018 hafa verið settar leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks. Reglurnar gera meðal annars ráð fyrir að sveitarfélög geti ákveðið forgangsröðun eða áherslusvið við úthlutun styrkja. Einnig gera reglurnar ráð fyrir að sveitarfélögum sé heimilt að binda styrk til einstaklings við þau mörk að aldrei skuli greiða meira en tiltekinn hundraðshluta af útlögðum kostnaði og allt að tiltekinni fjárhæð á ári. Samkvæmt reglunum geta sveitarfélög ákveðið að úthluta styrkjum einungis einu sinni á ári.
    Af þessu leiðir að fyrir einstaklinga getur verið erfitt að nálgast styrki til vinnutengdra hjálpartækja þar sem aðgengi að sjóðum sveitarfélaga er takmarkað, t.d. við eina úthlutun á ári og tiltekna forgangsröðun.

     2.      Kemur til álita að ríkið styrki vinnustaði til kaupa á nauðsynlegum hjálpartækjum til að auðvelda aðgengi fatlaðs fólks að vinnumarkaði?
    Þann 21. janúar sl. skipaði ráðherra starfshóp um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Í skipunarbréfi starfshópsins kemur fram að starfshópurinn skuli endurskoða lögin og þær reglugerðir sem lögunum fylgja með áherslu á að greina þau álitaefni sem upp hafa komið við framkvæmd laganna og koma með tillögur til ráðherra ekki síðar en 30. september 2021.
    Í vinnu starfshópsins hefur meðal annars verið skipaður undirhópur til að skoða sérstaklega V. kafla laganna um atvinnumál fatlaðs fólks og hafa eftirfarandi hugmyndir verið ræddar í starfshópnum:
     1.      Að teknir væru upp styrkir til atvinnurekenda til að koma til móts við kostnað vegna breytinga á húsnæði eða kaupa á nauðsynlegum búnaði/hjálpartækjum sem leiðir af viðeigandi aðlögun vegna fatlaðra starfsmanna.
     2.      Að einnig væru teknir upp styrkir til atvinnurekenda vegna verkstjórnar en ekki einvörðungu vegna launakostnaðar fatlaðs starfsmanns.
     3.      Aðgengi atvinnurekenda að aðstoð fagfólks vegna starfa fatlaðs starfsfólks verði aukið.
    Ráðherra bíður nú eftir endanlegum tillögum frá starfshópi um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018 og mun taka afstöðu til þeirra þegar þær liggja fyrir.