Ferill 17. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 17  —  17. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um aðkomu öryrkja og ellilífeyrisþega að kjaraviðræðum.


Flm.: Eyjólfur Ármannsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, Svanberg Hreinsson, Tómas A. Tómasson.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að tryggja aðkomu heildarsamtaka öryrkja og ellilífeyrisþega að viðræðum ríkisstjórnarinnar og fulltrúum vinnuveitenda og launþega um komandi kjarasamninga og tryggja að öryrkjar og ellilífeyrisþegar fái tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í viðræðunum ásamt því að ríkisstjórnin taki rökstudda afstöðu til þeirra sjónarmiða áður en viðræðunum lýkur.

Greinargerð.

    Í haust hefja fulltrúar vinnuveitenda og launþega viðræður um gerð kjarasamninga. Fjölmörg fordæmi eru fyrir því að ríkisstjórnin hafi aðkomu að kjaraviðræðum þegar svo hagar til. Aðkoma ríkisstjórnarinnar að gerð lífskjarasamninganna árið 2019 er aðeins eitt dæmi af mörgum. Þá gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu um að ráðist yrði í ýmsar aðgerðir, að upphæð 80 milljarðar kr. á gildistíma lífskjarasamninganna, til að styðja við markmið samninganna um stöðugleika og bætt kjör launafólks.
    Nauðsynlegt er að fulltrúar öryrkja og eldri borgara eigi sæti við borðið í samningaviðræðum milli ríkis, launþega og vinnuveitenda um kaup og kjör í landinu. Sagan sýnir að í þeim samningaviðræðum eru iðulega teknar veigamiklar ákvarðanir sem varða hagsmuni allra og því ber ríkinu að tryggja það að öryrkjar og eldri borgarar fái að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
    Í 69. gr. laga um almannatryggingar segir að bætur almannatrygginga skuli taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Þrátt fyrir þau skýru lagafyrirmæli hafa fjárhæðir almannatrygginga ekki fylgt launaþróun undanfarin ár og nú mælist uppsöfnuð kjaragliðnun í tugum prósenta.
    Öryrkjar og eldri borgarar geta ekki nýtt sér verkfallsrétt til að krefjast kjarabóta. Það hefur tvímælalaust áhrif á þróun kjara þeirra, enda hefur ríkisstjórn eftir ríkisstjórn virt mannréttindi þeirra svo gott sem að vettugi.
    Það er afar mikilvægt að sátt náist, ekki aðeins milli fulltrúa vinnumarkaðarins og ríkisins, heldur einnig lífeyrisþega. Slík sátt myndi skapa grundvöll fyrir auknum jöfnuði í samfélaginu.