Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 103  —  103. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um söfnun upplýsinga um dreifingu starfa.


Flm.: Hanna Katrín Friðriksson, Andrés Ingi Jónsson, Guðbrandur Einarsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Halldóra Mogensen, Helga Vala Helgadóttir, Jódís Skúladóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Sigmar Guðmundsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að skipa starfshóp sem falið verði að gera tillögur að nauðsynlegum lagabreytingum til söfnunar og vinnslu upplýsinga um landfræðilega dreifingu starfa og skilgreiningu hlutverks og ábyrgðar þeirra aðila sem málið varðar. Starfshópurinn verði skipaður fulltrúum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, félagsmálaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, auk þess sem leitað verði til fulltrúa Hagstofu Íslands, Vinnumálastofnunar, sveitarfélaga og annarra fagaðila við mótun tillagnanna.
    Tillögur verði kynntar Alþingi fyrir 1. desember 2022.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var áður lögð fram á 150. löggjafarþingi (530. mál) og er nú flutt að nýju óbreytt. Í umsögnum sem bárust um málið var stuðningi lýst við tillöguna. Tilgangur tillögu þessarar er að gera Hagstofu Íslands kleift að taka saman gögn um dreifingu starfa um landið. Þegar kemur að gögnum um staðsetningu starfa stendur Ísland höllum fæti í samanburði við önnur lönd í Evrópu og Norður-Ameríku. Þjóðskrá heldur saman upplýsingum um lögheimili fólks og með greiningu þeirra gagna er hægt að fá fram upplýsingar um íbúadreifingu. Upplýsingar um dreifingu starfa vantar hins vegar, sem og upplýsingar um ferðamynstur milli heimilis og vinnu. Nákvæm gögn um þessi atriði eru forsenda vandaðrar ákvarðanatöku á sviði samgangna og byggðaþróunar.
    Töluverð eftirspurn er eftir umræddum gögnum meðal fagaðila og hagsmunaaðila. Þau gögn sem eru til eru ófullnægjandi þar sem ekki er hægt að svara með nákvæmum hætti hversu margir starfa í tilteknu sveitarfélagi, hversu margir búa í einu bæjarfélagi en starfa í öðru eða hversu hátt hlutfall íbúa starfar í 10 mínútna fjarlægð frá heimili eða þjónustukjarna. Þess í stað þurfa fagaðilar að nota óbeinar aðferðir til að áætla svör við þessum spurningum. Til dæmis hefur verið stuðst við fermetrafjölda atvinnuhúsnæðis og hann umreiknaður yfir í starfafjölda, með tilheyrandi skekkju. Í öðrum tilvikum hafa aðilar notast við gögn úr símaskrá eða haft beint samband við einstök fyrirtæki til að afla upplýsinga um staðsetningu starfa.
    Helstu vandkvæðin við gagnaöflun felast í því að í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra eru allir starfsmenn fyrirtækja skráðir í höfuðstöðvum þeirra (skráðu lögheimili félags), óháð því hvort fyrirtæki rekur starfsstöðvar í sveitarfélögum utan viðkomandi sveitarfélags. Því vantar upplýsingar um raunverulega staðsetningu þeirra starfa, sem er lykilatriði þegar kemur að því að greina stöðu atvinnulífsins innan ákveðins svæðis, sveitarfélags eða landshluta. Þannig eru störf hótelstarfsfólks iðulega skráð á höfuðborgarsvæðinu, í höfuðstöðvum fyrirtækjanna, þótt störfin séu unnin í starfsstöð úti á landi. Sömu sögu eru að segja um skráningu starfsfólks ýmissa olíufélaga þrátt fyrir að þau reki þjónustustöðvar um allt land. Afleiðing þessa skráningarmáta er ofmat á fjölda starfa á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðin kemur verr út úr slíku mati en hún ætti að gera ef störf væru skráð í þeirri starfsstöð þar sem þau eru unnin.
    Ljóst er að talsverður ávinningur er af því að geta nálgast áreiðanlegar og ítarlegar upplýsingar til greiningar, í stað þess að byggja á ýmiss konar áætlunum og milliútreikningum. Í fyrsta lagi myndi það spara umtalsverðan tíma og kostnað vegna gagnasöfnunar og úrvinnslu. Í öðru lagi myndi það auðvelda samanburð við önnur lönd. Í þriðja lagi myndi slík gagnasöfnun stuðla að vandaðri stefnumótun og ákvarðanatöku og koma í veg fyrir ósamræmi milli aðila. Nú sem stendur getur það hæglega gerst að fagaðilar áætla fjölda starfa á tilteknu svæði með afar ólíkum hætti.

Hagnýtt gildi.
    Umferðarmannvirki eru stór hluti af heildarfjárfestingum hins opinbera. Nú er fyrirhuguð mikil uppbygging umferðarmannvirkja, til dæmis í tengslum við samkomulag um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu og þar á meðal Borgarlínu. Til þess að hægt sé að bæta forgangsröðun þessara fjárfestinga, auka flæði umferðar og spá með nákvæmari hætti fyrir um mögulega álagspunkta er nauðsynlegt að búa yfir upplýsingum um helstu áfangastaði í samgöngukerfinu, sér í lagi vinnustaði fólks.
    Enn fremur er fyrirséð að slíkar upplýsingar nýtist í byggðarannsóknum, vinnumarkaðsrannsóknum og öðrum samfélagslegum rannsóknum, sem og við gerð sóknaráætlana landshluta, gerð og eftirfylgni byggðaáætlana og skipulag almenningssamgangna um allt land. Þá gætu aðilar á markaði nýtt slíkar upplýsingar við ákvarðanatöku um staðsetningu ákveðinnar þjónustu, til dæmis matsölustaða eða verslana.
    Til framtíðar væri eftirsóknarvert að safna á landsvísu upplýsingum um fleiri heita reiti með sambærilegum hætti. Er þar átt við skóla, gististaði, heilbrigðistofnanir, sundlaugar og aðra staði sem þekkt er að fylgi regluleg umferð. Þó er lagt er til að það verði gert í næstu áföngum en lögð verði áhersla á landsupplýsingar um vinnustaði í fyrstu atrennu.

Fordæmi, verklag og birting upplýsinga.
    Flutningsmenn tillögu þessarar leggja til að mið verði tekið af fordæmum nágrannaríkja Íslands þegar kemur að vinnu og tillögum starfshópsins. Má þar nefna að í Danmörku heldur fyrirtækjaskrá utan um skráningu starfsstöðva og fjölda starfsmanna á hverri starfsstöð en danska hagstofan sér síðan um úrvinnslu gagna.
    Þá er lagt til að þessar upplýsingar verði birtar gjaldfrjálst á opnu, læsilegu sniði og uppfærðar að lágmarki árlega. Lagt er til að grunngögn verði gerð opinber og aðgengileg, en þó þannig að persónuverndarsjónarmiða verði sérstaklega gætt. Með opnu sniði er átt við snið sem krefst ekki aðgangs að sérstökum gjaldskyldum hugbúnaði svo að hægt sé að nýta gögnin. Jafnframt er átt við að unnt sé að nota gögnin sjálf, vinna með þau og selja áfram án sérstakrar heimildar frá þeim aðila sem upprunalega tekur gögnin saman og heldur utan um þau.

Fagaðilar.
    Upplýsingar um landfræðilega dreifingu starfa gætu gagnast fagaðilum sem vegna starfsemi sinnar, eða skyldu að lögum, vinna að fjárfestingum og ákvarðanatöku á sviði samgangna og byggðaþróunar. Má þar nefna sem dæmi Vegagerðina, Byggðastofnun, Strætó, Hagstofu Íslands, fyrirtækjaskrá Skattsins, sveitarfélög, landshlutasamtök, háskóla og ráðgjafarfyrirtæki. Verði tillaga þessi samþykkt gæti hún stuðlað að því að þessir aðilar og fleiri gætu sinnt hlutverki sínu af meiri nákvæmni en áður með tilheyrandi ávinningi fyrir íslensku þjóðina.