Ferill 145. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 296 — 145. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um skimun fyrir brjóstakrabbameini.
1. Hversu margar konur hafa farið í skimun eftir brjóstakrabbameini frá árinu 2015 og þar til nú, sundurliðað eftir ári?
Myndin hér á eftir sýnir fjölda kvenna sem hafa komið í skimun fyrir brjóstakrabbameini á árunum 2015–2021. Tölur um fjölda kvenna í skimun fyrir brjóstakrabbameini ná aðeins frá janúar til og með nóvember fyrir 2021 og gefa því ekki endanlega mynd af fjölda skoðana á árinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fjöldatölur segja takmarkaða sögu um þátttökuna í skimun. Þátttakan er reiknuð sem hlutfall kvenna sem mæta í skimun af þeim fjölda kvenna sem fær boð í skimun. Þetta hlutfall gefur réttari mynd af því hver þátttakan í skimuninni er frekar en hreinar fjöldatölur, sjá mynd hér á eftir. Tölur fyrir árið 2021 eru með þeim fyrirvara að ekki er hægt að reikna út endanlegt þátttökuhlutfall í skimuninni fyrir 2021 fyrr en öll gögn liggja fyrir að ári loknu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hver er áætlaður kostnaður ríkisins fyrir hverja skimun fyrir brjóstakrabbameini bæði fyrir og eftir flutning frá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins til Brjóstamiðstöðvarinnar á Landspítala?
Ekki liggur fyrir sundurliðaður kostnaður vegna brjóstaskimana annars vegar og hins vegar leghálsskimana þegar þær voru framkvæmdar hjá Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands (LKÍ). Þjónustusamningur Sjúkratrygginga Íslands og LKÍ um skipulagða leit náði yfir bæði krabbamein í leghálsi og brjóstum og var greitt samkvæmt fjárlögum. Á fjárlögum 2020 var sú upphæð 332,1 millj. kr. en auk þess fékk LKÍ tímabundna viðbótargreiðslu að upphæð 50 millj. kr.
Samkvæmt uppfærðu kostnaðarmati Landspítala vegna skimunar fyrir krabbameini í brjóstum sem framkvæmd var á Landspítala 2020 er heildarkostnaður fyrir allt landið um 198 millj. kr. á ári miðað við 23.330 skimanir. Verð sem konur greiða fyrir brjóstaskimun er frá áramótum 2020–2021 hluti af greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands en verð fyrir brjóstaskimun samkvæmt gjaldskrá Landspítala er almennt 4.949 kr. og 2.526 kr. fyrir aldraða og öryrkja.
3. Hver er biðtími kvenna eftir niðurstöðum á skimun á brjóstakrabbameini, bæði fyrir og eftir áðurnefndan flutning?
Í Evrópuleiðbeiningum um skimanir fyrir brjóstakrabbameini eru sett fram gæðaviðmið sem kveða á um að æskilegt sé að tíminn sem líður frá brjóstamyndatöku þangað til niðurstaða fæst sé undir 10 virkum dögum en ásættanlegt viðmið er 15 virkir dagar.
Myndin sýnir meðalsvartíma hér á landi frá febrúar 2020 fram til nóvember 2021.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4. Hyggst ráðherra bjóða konum yngri en 40 ára í skimun fyrir brjóstakrabbameini í ljósi fyrirliggjandi dæma um að konur undir 40 ára greinist með brjóstakrabbamein?
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með skimun fyrir brjóstakrabbameini frá 50 ára aldri. Ekki er mælt með skipulagðri skimun hjá yngri konum og flest lönd fylgja þessum ráðleggingum. Á Norðurlöndunum eru Ísland og Svíþjóð einu löndin sem skima konur frá 40 ára aldri fyrir brjóstakrabbameini. Skimunarráð og landlæknir hafa ráðlagt hækkun skimunaraldurs hér á landi miðað við það sem nú er. Rétt er að árétta að hér er verið að fjalla um lýðgrundaða skimun en ekki almenn viðbrögð heilbrigðiskerfisins ef kona verður vör við einhver einkenni sem kalla á brjóstaskoðun.