Ferill 199. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 300  —  199. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um COVID-19-smit barna hér á landi.


     1.      Hversu mörg börn á aldrinum 5–11 ára hafa verið greind með COVID-19?
    Hér á landi hafa 6.578 börn á aldrinum 0–16 ára greinst með COVID-19 frá upphafi faraldursins til 2. janúar 2022, þar af eru 3.449 börn á aldrinum 5–11 ára.

     2.      Hversu mörg börn á aldrinum 5–11 ára sem hafa greinst með COVID-19 hafa verið lögð inn á sjúkrahús vegna smitsins?
    Sex börn á aldrinum 0–16 ára hafa verið lögð inn á sjúkrahús hér á landi vegna COVID-19 frá upphafi faraldursins til 2. janúar 2022. Ekkert barn á aldrinum 5–11 ára hefur hins vegar verið lagt inn á sjúkrahús.

     3.      Hversu mörg börn á aldrinum 5–11 ára sem hafa greinst með COVID-19 hafa þurft á gjörgæslustuðningi að halda vegna smitsins?
    Frá upphafi faraldursins til 2. janúar 2022 hafa tvö börn á aldrinum 0–16 ára þurft á gjörgæslustuðningi að halda vegna smitsins en ekkert barn á aldrinum 5–11 ára. Alls hafa 17 börn á aldrinum 0–16 ára fengið rauða merkingu í eftirliti COVID-göngudeildar, sem þýðir mjög alvarleg veikindi sem þarfnast athugunar læknis, þar af fjögur sem voru á aldrinum 5–11 ára. Á sama tíma hafa 308 börn á aldrinum 0–16 ára fengið gula merkingu í eftirliti COVID-göngudeildar sem þýðir versnandi veikindi, þar af 143 sem voru á aldrinum 5–11 ára.