Ferill 278. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 390 — 278. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um brot gegn 217. og 218. gr. almennra hegningarlaga.
Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.
Hversu mörg mál hafa verið skráð í málaskrá lögreglu undanfarin 10 ár þar sem grunur var um brot gegn 217. gr. hegningarlaga annars vegar og 218. gr. hins vegar, skipt eftir því hvort um er að ræða brot gegn 1. eða 2. mgr. þeirrar greinar? Svar óskast sundurliðað eftir árum og eftir því hvort meintur gerandi var eldri eða yngri en 18 ára.
Skriflegt svar óskast.