Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 422  —  304. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um heildarúttekt heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma.

Frá Jódísi Skúladóttur.

     1.      Hvað líður heildarúttekt heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma sem sett var af stað hinn 11. maí 2021?
     2.      Telur ráðherra að framboð meðferðarúrræða sé nægilega fjölbreytt?
     3.      Hver er afstaða ráðherra gagnvart því að heilbrigðisþjónusta sé rekin af frjálsum félagasamtökum?
     4.      Hver er stefna ráðherra í málaflokknum?