Ferill 239. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 436  —  239. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Loga Einarssyni um eignir og tekjur landsmanna árið 2021.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvert var eigið fé þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2021 og hvert var hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra landsmanna það ár?
     2.      Hverjar voru heildareignir þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2021 og hvert var hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna það ár?
     3.      Hverjar voru tekjur tekjuhæstu a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna árið 2021, með og án fjármagnstekna, og hvert var hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna það ár?
     4.      Hvað áttu tekjuhæstu a) 10%, b) 5%, c) 1%, d) 0,1% landsmanna árið 2021 stóran hluta af annars vegar eigin fé landsmanna og hins vegar heildareignum landsmanna það ár?


    Sambærileg fyrirspurn um eignir og tekjur framteljenda á næstliðnu ári hefur verið lögð fram mörg undanfarin ár. Eins og jafnan hefur komið fram í svörum við fyrirspurnunum hafa þau byggst á skattframtalsgögnum framteljenda frá og með árinu 1998 frá embætti ríkisskattstjóra þar sem það eru bestu og heildstæðustu upplýsingarnar sem völ er á um eignir og tekjur einstaklinga. Unnið hefur verið úr gögnunum frá embættinu með tölfræðigreiningu hjá ráðuneytinu. Hins vegar liggja þessi gögn fyrir árið 2021 ekki fyrir fyrr en gengið hefur verið frá álagningu á einstaklinga vegna tekjuársins 2021 undir lok maímánaðar nk. Af þeim sökum er ekki hægt að verða við því að veita svar við fyrirspurninni innan þess 15 daga frests sem gert er ráð fyrir í þingskapalögum.