Ferill 158. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 437 — 158. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um skuldir heimila við fjármálafyrirtæki.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver er fjöldi og heildarfjárhæð útistandandi fasteignalána fjármálafyrirtækja til neytenda og hvernig skiptast þau eftir því hvort þau eru verðtryggð eða óverðtryggð, með föstum vöxtum eða breytilegum og hvort þau eru jafngreiðslulán eða með jöfnum afborgunum?
2. Hver er fjöldi og heildarfjárhæð útistandandi neytendalána annarra en fasteignalána og hvernig skiptast þau eftir því hvort þau eru verðtryggð eða óverðtryggð, með föstum vöxtum eða breytilegum og hvort þau eru jafngreiðslulán eða með jöfnum afborgunum eða öðru greiðslufyrirkomulagi, svo sem yfirdráttarheimildir eða veltilán með ótilgreinda gjalddaga?
3. Telur ráðherra koma til greina að framangreindar upplýsingar verði birtar opinberlega með reglubundnum hætti, svo sem mánaðarlega?
Leitað var upplýsinga hjá Seðlabanka Íslands vegna 1. og 2. tölul., en það er eitt af reglubundnum verkefnum bankans að annast skipulega öflun og birtingu gagna um lánamarkað á Íslandi.
Rétt er að vekja athygli á því að fleiri aðilar á fjármálamarkaði veita neytendalán og fasteignalán til neytenda en þeir sem teljast til fjármálafyrirtækja í skilningi laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Þeirra veigamestir eru lífeyrissjóðir sem eru fyrirferðarmiklir á markaði með fasteignalán. Tölulegar upplýsingar hér að aftan ná til allra þeirra lánveitenda sem gögn Seðlabankans ná til en ekki einungis þeirra sem teljast til fjármálafyrirtækja samkvæmt orðskýringu laga nr. 161/2002.
Tafla 1 sýnir fjölda og fjárhæð útistandandi fasteignalána eftir lánaformi og greiðslufyrirkomulagi í september sl. samkvæmt gögnum Seðlabankans. Tölurnar ná til útlána Arion banka, Íslandsbanka, Landsbanka, ÍL-sjóðs og níu lífeyrissjóða. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum ná þessar tölur til næstum allra útistandandi fasteignalána til neytenda, eða vel yfir 95% þeirra. Vert er að taka fram að fleiri en eitt lán geta staðið að baki hverri lánveitingu og að fleira en eitt lán getur verið veðsett í hverri fasteign.
Tafla 1. Fjöldi og fjárhæð fasteignalána til neytenda frá helstu lánveitendum, sept. 2021.
| Tegund lána | Fjöldi lána | Fjárhæð lána, milljarðar kr. |
| Verðtryggt, jafnar greiðslur, breytilegir vextir | 20.156 | 356,5 |
| Verðtryggt, jafnar greiðslur, fastir vextir | 38.146 | 530,9 |
| Verðtryggt, jafnar afborganir, breytilegir vextir | 9.023 | 73,7 |
| Verðtryggt, jafnar afborganir, fastir vextir | 3.576 | 36,0 |
| Óverðtryggt, jafnar greiðslur, breytilegir vextir | 35.501 | 605,2 |
| Óverðtryggt, jafnar greiðslur, fastir vextir | 18.885 | 382,8 |
| Óverðtryggt, jafnar afborganir, breytilegir vextir | 12.173 | 94,1 |
| Óverðtryggt, jafnar afborganir, fastir vextir | 3.648 | 48,2 |
| Samtals | 141.108 | 2.127,3 |
Seðlabanki Íslands safnar ekki upplýsingum um önnur neytendalán en fasteignalán í nægjanlegu niðurbroti til að unnt sé að svara 2. tölul. fyrirspurnarinnar til fulls. Tafla 2 sýnir tiltækar upplýsingar um skiptingu allra skulda heimila við fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóði eftir lánaformi og greiðslufyrirkomulagi í september sl. Tölurnar ná til bæði fasteignalána og annarra lána.
Tafla 2. Heildarskuldir heimila við fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóði, september 2021.
| Tegund lána | Fjárhæð lána, milljarðar kr. |
| Skuldir með veði í íbúðarhúsnæði, samtals | 2.158,9 |
| þar af gengisbundin | 0,05 |
| þar af óverðtryggð | 1.117,5 |
| þar af verðtryggð | 1.041,4 |
| Aðrar skuldir, samtals | 502,9 |
| þar af gengisbundnir lánasamningar og skuldabréfalán | 2,3 |
| þar af verðtryggðir lánasamningar og skuldabréfalán | 284,8 |
| þar af óverðtryggðir lánasamningar og skuldabréfalán | 121,5 |
| þar af óverðtryggð yfirdráttarlán | 84,6 |
| þar af gengisbundin yfirdráttarlán | 0,02 |
| þar af eignarleigusamningar | 9,6 |
Framangreindar upplýsingar eru að megninu til birtar opinberlega á vefsíðu Seðlabanka Íslands og eru uppfærðar mánaðarlega. Upplýsingar um skuldir heimilanna eru auk þess birtar í ritum bankans, Hagvísum, Peningamálum og Fjármálastöðugleika. Upplýsingar um fjölda lána eru þó ekki birtar með reglubundnum hætti. Ráðherra telur rétt að þær stofnanir sem annast birtingu opinberra hagtalna, þ.m.t. Seðlabanki Íslands, meti hvaða tölfræði er unnin og hvaða gögn birt að teknu tilliti til gildandi laga og skuldbindinga alþjóðasamninga.