Ferill 196. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 438  —  196. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um lækkun vörugjalds af bifreiðum.


     1.      Hve margar ökutækjaleigur hafa gengist undir skuldbindingu um kaup á rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiðum á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða XIX í lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993?
    Á árinu 2021 hafa alls 23 ökutækjaleigur nýtt sér lækkun á vörugjaldi samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XIX í lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.
    Hinn 15. janúar sl. bar ökutækjaleigunum að skila til Skattsins skýrslu um hvernig þær hafa staðið við þá skuldbindingu, sem ákvæði til bráðabirgða XIX mælir fyrir um, að keypt vistvæn ökutæki á árinu 2021 nemi 15% af heildarinnkaupum á ökutækjum á því ári. Skatturinn vinnur nú að því að fara yfir skýrslurnar. Komi í ljós að ökutækjaleiga hafi ekki staðið við skuldbindinguna ber henni að endurgreiða í ríkissjóð alla þá vörugjaldslækkun sem hún fékk á árinu 2021 á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða XIX, að viðbættu 10% álagi, og skal endurgreiðslan innt af hendi þriðjudaginn 1. febrúar. Ákvarðanir Skattsins um endurgreiðslu vörugjalda, ef til þess kemur, liggja fyrir um mánaðamótin.

     2.      Hver er beinn kostnaður ríkissjóðs vegna lækkunar vörugjalds af rafmagnsbifreiðum sem ökutækjaleigur keyptu árið 2021 á grundvelli ákvæðisins?
    Vörugjald sem lagt er á fólksbifreiðar miðast við skráða koltvísýringslosun þeirra, sbr. 3. gr. laga nr. 29/1993. Ekki er lagt vörugjald á rafmagnsbifreiðar þar sem þær losa ekki koltvísýring. Ákvæði til bráðabirgða XIX kemur því ekki til skoðunar í tilviki rafmagnsbifreiða.

     3.      Hver er beinn kostnaður ríkissjóðs vegna lækkunar vörugjalds af tengiltvinnbifreiðum sem ökutækjaleigur keyptu árið 2021 á grundvelli ákvæðisins?
    Á árinu 2021 hefur engin ökutækjaleiga fengið lækkun á vörugjaldi tengiltvinnbifreiða á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða XII í lögum nr. 29/1993.
    Rétt er að taka fram að aðeins er lagt vörugjald á tengiltvinnbifreiðar sem eru með skráða koltvísýringslosun umfram þau mörk sem tilgreind eru í 3. gr. laga nr. 29/1993. Tengiltvinnbifreiðar sem bera vörugjöld eru í miklu minni hluta tengiltvinnbifreiða.

     4.      Hver er beinn kostnaður ríkissjóðs vegna lækkunar vörugjalds af bensín- og dísilbifreiðum sem ökutækjaleigur keyptu árið 2021 á grundvelli ákvæðisins?
    Beinn kostnaður ríkissjóðs vegna lækkunar vörugjalds samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XIX nemur 875 millj. kr. vegna ársins 2021. Um er að ræða lækkun á vörugjöldum fólksbifreiða sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti.

     5.      Hver er áætlaður kostnaður ríkissjóðs vegna lækkunar vörugjalds á grundvelli fyrrgreinds ákvæðis árið 2022 og hvernig má ætla að kostnaðurinn skiptist niður á rafmagnsbifreiðar, tengiltvinnbifreiðar og bensín- og dísilbifreiðar?
    Samkvæmt tekjuáætlun sem liggur til grundvallar fjárlögum fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs vegna lækkunar vörugjalds á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða XII í lögum nr. 29/1993 verði um 1.000 millj. kr.
    Rétt er að geta þess að vörugjaldslækkunin samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XII í lögum nr. 29/1993 vegna ársins 2022 er m.a. bundin því skilyrði að ökutækjaleigur kaupi vistvæn ökutæki fyrir sem nemur að lágmarki 25% af heildarinnkaupum ársins. Nánar tiltekið er um að ræða vistvæn ökutæki sem falla undir gildissvið ákvæðis til bráðabirgða XXIV í lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt (ákvæðið mælir fyrir um sérstaka VSK-ívilnun í tengslum við innflutning, fyrstu sölu og endursölu á rafmagns- og vetnisbílum og tengiltvinnbifreiðum sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi losun á koltvísýring). Rétturinn til VSK-ívilnunarinnar fellur niður þegar samtals 15.000 bílar í hverjum flokki, sem notið hafa ívilnunar, hafa verið skráðir á ökutækjaskrá. Gert er ráð fyrir að 15.000 bíla hámarkinu verði náð fyrir tengiltvinnbíla í apríl eða maí á þessu ári. Tengiltvinnbílar sem ökutækjaleigur kaupa eftir það tímamark uppfylla þá ekki skilyrðið um að vera vistvænn bíll í skilningi ákvæðis til bráðabirgða XII í lögum nr. 29/1993 og geta þar af leiðandi ekki talist hluti af 25% hlutfallinu. Mögulega kann þetta að draga úr áhuga ökutækjaleiga að nýta sér vörugjaldsafsláttinn samkvæmt ákvæðinu sem aftur kann að leiða til þess að kostnaður ríkissjóðs vegna ákvæðisins verði lægri en áætlunin gerir ráð fyrir.