Ferill 227. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 445 — 227. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um peningaþvætti með spilakössum.
1. Til hvaða aðgerða hefur verið gripið í kjölfar áhættumats ríkislögreglustjóra í mars 2021, þar sem talin var mikil hætta á peningaþvætti í tengslum við starfsemi söfnunarkassa og happdrættisvéla? Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til viðbótar?
Í kjölfar þess að áhættumat ríkislögreglustjóra var birt í mars 2021 gaf stýrihópur ráðherra um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka út aðgerðaáætlun þar sem ráðlagðar eru aðgerðir til að mæta metinni hættu í áhættumati. Í flokknum „söfnunarkassar og happdrættisvélar“ er lagt til að innleidd verði spilakort til að takmarka nafnleysi spilara og koma í veg fyrir falska vinninga.
Hinn 26. mars 2021 skipaði ráðherra starfshóp til að kanna mögulegar réttarbætur á sviði happdrættismála. Samkvæmt skipunarbréfi starfshópsins er honum ætlað að gera tillögur til ráðherra um breytingar á lögum og reglugerðum teljist þær nauðsynlegar og eftir atvikum að greina fjárþörf til að tryggja að mögulegar breytingar geti átt sér stað. Í skipunarbréfinu eru enn fremur talin upp þau atriði sem starfshópnum er meðal annars falið að athuga:
1. Möguleikar núverandi sérleyfishafa á happdrættismarkaði hér á landi til að bjóða upp á spil á netinu.
2. Hvernig hægt sé að stemma stigu við ólöglegri netspilun hér á landi.
3. Að kanna leiðir til að koma á skyldu til að nota spilakort.
4. Hvernig haga skuli leyfisveitingum og eftirliti með happdrættum, þar á meðal tæknilegu eftirliti.
5. Mögulega samvinnu leyfisskyldra happdrætta hér á landi, annað hvort allra eða happdrætta með skylda starfsemi.
6. Hvernig rannsóknum á spilafíkn og ólöglegu fjárhættuspili skuli háttað.
7. Hvernig unnt sé að standa straum af kostnaði við framkvæmd laga um happdrætti og forvörnum og rannsóknum vegna spilavanda.
Áætlað er að starfshópurinn skili skýrslu til ráðherra í mars á þessu ári þar sem fram komi tillögur hans að úrbótum í happdrættismálum. Ekki er fyrirhugað að grípa til frekari aðgerða hvað varðar starfsemi söfnunarkassa og happdrættisvéla fyrr en framangreindur starfshópur hefur skilað úrbótatillögum sínum.
2. Hversu margar tilkynningar hafa borist skrifstofu fjármálagreininga lögreglu hvert undanfarinna fimm ára þar sem grunur hefur leikið á því að spilakassar hafi verið notaðir við peningaþvætti?
Skrifstofu fjármálagreininga lögreglu hafa borist samtals 34 tilkynningar sem varða spilakassa undanfarin fimm ár, sundurliðað með eftirfarandi hætti milli ára:
| 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 |
| 0 | 6 | 11 | 14 | 3 |