Ferill 212. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 451 — 212. mál.
Svar
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um fjarnám í Háskóla Íslands.
Ráðuneytið aflaði upplýsinga frá Háskóla Íslands um öll þau atriði sem fyrirspurnin beinist að. Tvenns konar upplýsingar bárust sem svar við fyrstu spurningu þingmanns. Annars vegar yfirlit yfir hve margar námsleiðir séu í boði í fjárnámi og hins vegar hve mörg námskeið eru í boði í fjarnámi. Þess skal getið að erfitt er að flokka doktorsnám sem fjarnám eða staðnám. Doktorsnemar vinna í flestum tilvikum að rannsóknartengdri ritgerð undir leiðsögn leiðbeinanda en sækja fá eða engin námskeð. Í sumum tilfellum krefst vinnan daglegrar viðveru á rannsóknarstofu en í öðrum alfarið af skrifum nemanda sem hægt er að sinna fjarri skólanum. Því lýtur svar við ofangreindri fyrirspurn að námskeiðum og námsleiðum á grunn- og meistarastigi.
Í Kennsluskrá Háskóla Íslands er birt yfirlit yfir helstu námsleiðir sem boðið er upp á í fjarnámi í grunn- og framhaldsnámi. Þar eru taldar upp ellefu (11) námsleiðir á Félagsvísindasviði, ein (1) á Heilbrigðisvísindasviði, þrjár (3) á Hugvísindasviði, engin á Verkfræði- og náttúruvísindasviði auk þess sem boðið er upp á fjarnám í öllum fjórum deildum á Menntavísindasviði. Oft er ekki um að ræða fullt nám í fjarnámi heldur einstök námskeið. Gerð er grein fyrir námskeiðum sem í boði eru í fjarnámi í töflunum hér að neðan. Ekki eru talin námskeið sem kennd hafa verið í neyðarfjarkennslu á tíma heimsfaraldurs.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Í töflunni hér á eftir er hlutfall námskeiða í fjarnámi skipt eftir námsstigi.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Einnig má fá yfirlit yfir fjarnám við Háskóla Íslands með því að skoða hversu margir nemendur eru skráðir í a.m.k. eitt fjarnámskeið.
Af þeim 2143 nemendum sem sækja fjarnámskeið við Háskóla Íslands eru um 750 með lögheimili utan höfuðborgarsvæðisins.
2. Eru áform um að bjóða upp á fjarnám í öllum deildum í grunnnámi og framhaldsnámi?
Háskóli Íslands er sjálfstæð stofnun samkvæmt lögum og ber rektor ábyrgð á fyrirkomulagi náms og kennslu við skólann. Það er ekki stefna skólans að bjóða upp á fjarnám í öllum deildum í grunnnámi og framhaldsnámi. Hins vegar er í nýrri stefnu Háskóla Íslands 2021–2026 sett fram sýn varðandi þróun náms við skólann til næstu fimm ára og er þar meðal annars kveðið á um upplýsingatæknivæðingu kennslu, alþjóðavæðingu námsins og fjölbreytt námsframboð sem stuðlar að sjálfbærni samfélaga. Stefnan kveður einnig á um þróun fjarnáms, m.a. að gæði slíks náms verði tryggð, aukin sérfræðiþekking á slíku námi verði innan skólans og aukið framboð fjarnáms. Samkvæmt aðgerðaáætlun sem verið er að hrinda í framkvæmd verður lögð áhersla á að byggja upp fjarnám á völdum námsleiðum, þar sem tillit er tekið til þarfa nemendahópa og samfélagsins fyrir slíkt nám.
3. Hver er áætlaður kostnaður og umfang þess að bjóða upp á fjarnám í öllum deildum í grunnnámi og framhaldsnámi?
Ekki hefur verið lagt mat á kostnað við að bjóða upp á fjarnám í öllum deildum í grunnnámi og framhaldsnámi við Háskóla Íslands, enda er það ekki stefna skólans eins og ráða má af svari við spurningu tvö (2). Á hinn bóginn áformar Háskóli Íslands, í samræmi við núverandi stefnu, að styrkja á ári hverju 3–4 námsleiðir sem hyggjast (i) endurhanna nám á allri viðkomandi námsleið sem fjarnám eða (ii) endurskoða núverandi fjarnámsleið. Hefur skólinn gert ráð fyrir að kostnaður við þessa styrki næmi um 50 millj. kr. á hverju ári, eða rúmlega 10 millj. kr á námsleið. Inni í því kostnaðarmati er kostnaður við námskeiðshönnun, þjálfun kennara, tæknibúnað o.fl. Við þann kostnað leggst ýmis kostnaður miðlægra eininga, svo sem kennslusviðs og upplýsingatæknisviðs. Loks bendir skólinn á að aukið námsframboð, óháð námsformi, mun kalla á aukið framlag kennara og þar af leiðandi fleiri fastar akademískar stöður. Af þessum tölum má fá vissa vísbendingu um kostnaðinn við að breyta öllum námsleiðum Háskóla Íslands, sem skipta hundruðum, yfir í fjarnámsleiðir.