Ferill 219. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 452 — 219. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um skráningu lögheimilis.
1. Er mögulegt að skrá sig til lögheimilis í íbúð eða húsi án þess að eigandi eða nokkur sem á þar lögheimili viti af því? Ef svo er ekki, var það einhvern tíma mögulegt og hvenær var því þá breytt?
Það á ekki að vera hægt þar sem þinglýstur eigandi fær tilkynningu í pósthólf sitt á Ísland.is þegar einhver skráir lögheimili sitt í fasteign í hans eigu, sjá 3. mgr. 12. gr. laga nr. 80/2018, um lögheimili og aðsetur. Hins vegar fær einstaklingur sem er með lögheimili þar ekki tilkynningu, að því gefnu að hann sé ekki þinglýstur eigandi fasteignarinnar. Lög nr. 80/2018, um lögheimili og aðsetur, tóku gildi 1. janúar 2019 en með þeim var lögfest sú regla að tilkynna ætti þinglýstum eiganda ef einstaklingur væri skráður með lögheimili í fasteign í hans eigu. Fyrir gildistöku laga nr. 80/2018 fengu þinglýstir eigendur ekki sjálfvirka tilkynningu þegar einstaklingur tilkynnti um lögheimili í fasteign í hans eigu.
2. Með hvaða leiðum getur fólk skráð lögheimili sitt og hvernig staðfesta eða hafna íbúar sem eru þar fyrir með lögheimili slíkri skráningu?
Það er hægt að tilkynna um breytingu á lögheimili á vef Þjóðskrár Íslands eða með því að koma í afgreiðslu stofnunarinnar í Reykjavík og á Akureyri. Ekki er kallað eftir staðfestingu íbúa sem þar búa fyrir. Svo sem fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar fær þinglýstur eigandi eignar tilkynningu um nýskráningu lögheimilis og getur því brugðist við ef viðkomandi t.d. býr ekki í húsinu.
3. Er hægt að skrá lögheimili í íbúð eða húsi sem er ekki með neina lögheimilisskráningu án þess að eigandi fasteignarinnar viti af því?
Þinglýstur eigandi fær tilkynningu þegar tilkynnt er um lögheimili í fasteign í hans eigu.
4. Er fylgst með því hversu margir eru skráðir með lögheimili með sjálfvirkum hætti? Eru fleiri dæmi um lögheimilisskráningu í húsi eins og var í húsinu sem brann við Bræðraborgarstíg, þar sem fjöldi skráðra miðað við fjölda fermetra hefði átt að vekja athygli eftirlitsaðila?
Það er nú fylgst með því þegar fjöldi þeirra sem eru með skráð lögheimili í fasteign er óeðlilegur. Í slíkum tilvikum er fylgst með skráningum í viðkomandi húsnæði í einhvern tíma eftir að þjóðskrá hefur könnun á fasteignum sem talið er að of margir séu skráðir í. Þjóðskrá Íslands hefur tekið slíkar skráningar til skoðunar og óskað eftir upplýsingum um hverjir í raun hafa fasta búsetu í fasteigninni samkvæmt ákvæðum laga nr. 80/2018. Þjóðskrá Íslands hefur að eigin frumkvæði hafist handa við að athuga lögheimilisskráningar í íbúðarhúsnæði þar sem fjöldi íbúa er talinn gefa til kynna að um ranga skráningu geti verið að ræða. Vinnslu mála hefur verið forgangsraðað þannig að byrjað er að athuga íbúðarhúsnæði með flestar lögheimilisskráningar einstaklinga. Þegar horft er til fjölda lögheimilisskráninga í íbúðarhúsnæði þarf að taka tillit til húsnæðisgerðar og fjölda íbúða, í fjölbýlishúsum með mörgum íbúðum getur verið töluverður fjöldi skráður með lögheimili án þess að neitt athugavert sé við það.
5. Hver er minnsti fermetrafjöldi á hvern íbúa samkvæmt lögheimilisskráningu?
Það eru engar leiðbeiningar til um þetta atriði. Hvorki er að finna í lögum nr. 80/2018 né í reglugerð á grundvelli laganna skilgreiningu á því hvað sé hæfilegur fjöldi einstaklinga sem mega eða geta haft lögheimili í íbúð eða húsi á hverjum tíma. Ákvæði 2. gr. kveður á um að einstaklingur eigi að hafa lögheimili þar sem hann hefur fasta búsetu. Ákvæðið tilgreinir hins vegar ekki hversu margir geti haft lögheimili á sama stað, í sömu íbúð.
6. Geta fyrirtæki skráð heimilisfang sitt í húsi eða íbúð án þess að eigandi eða nokkur sem á þar lögheimili viti af því?
Þjóðskrá Íslands heldur ekki utan um skráningar fyrirtækja í fasteignum en Skatturinn heldur utan um fyrirtækjaskrá og þar með skráð heimilisföng fyrirtækja. Í þjóðskrá eru einungis skráðar upplýsingar um einstaklinga. Beina þarf spurningu þessari til fjármála- og efnahagsráðherra.