Ferill 323. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Prentað upp.
Þingskjal 458 — 323. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Frá Oddnýju G. Harðardóttur.
2. Hve margir starfsmenn fengu starf að nýju hjá hverju fyrirtæki fyrir sig sem nýtti sér úrræðið?
3. Hvernig var fylgst með því að starfsfólk væri endurráðið á sömu kjörum og það var á fyrir uppsögnina?
4. Eftir hvaða reglum var farið þegar endurráðið var eða uppsagnir afturkallaðar? Tilgreint verði hvort farið var eftir starfsaldursröð eingöngu eða öðrum viðmiðum, greint eftir fyrirtækjum.
5. Hvernig verða eða hafa viðbrögð stjórnvalda verið við því ef endurráðningar eru ekki samkvæmt lögum?
6. Hvernig hefur verið fylgst með því af hálfu ríkisins að fyrirtæki fari að skilyrðum fyrir stuðningi samkvæmt fyrrnefndum lögum og hvernig er eftirfylgni með því háttað?
Skriflegt svar óskast.