Ferill 328. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 463  —  328. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um starfshóp um hagsmunafulltrúa eldra fólks.

Frá Ingu Sæland.


    Hefur ráðherra stofnað starfshóp á grundvelli ályktunar Alþingis frá 13. júní sl. þess efnis að stofna skuli starfshóp sem semji frumvarp til laga um embætti hagsmunafulltrúa eldra fólks? Ef svo er, hvenær var starfshópurinn stofnaður, hverjir eiga sæti í honum og hvenær má vænta þess að starfshópurinn skili drögum að frumvarpi til ráðherra?


Skriflegt svar óskast.