Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 475 — 335. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um samninga Sjúkratrygginga Íslands við veitendur heilbrigðisþjónustu.
Frá Sigmari Guðmundssyni.
1. Hversu margir samningar eru í gildi milli Sjúkratrygginga Íslands og þjónustuveitenda heilbrigðisþjónustu?
2. Við hvaða aðila hafa framangreindir samningar verið gerðir og til hversu langs tíma gilda þeir?
3. Hvaða samningar eru í gildi við aðila sem veita meðferð við áfengisvanda, vímuefnavanda og annarri fíkn?
Skriflegt svar óskast.