Ferill 336. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 476  —  336. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um aðild ríkisfyrirtækja að Samtökum atvinnulífsins.

Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.


     1.      Hvaða ríkisfyrirtæki, þ.e. félög sem íslenska ríkið á alfarið eða ráðandi eignarhluti í, eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum þeirra?
     2.      Hvað hafa fyrirtækin greitt í árgjöld og félagsgjöld til Samtaka atvinnulífsins og aðildarsamtaka þeirra á tímabilinu 2010–2021, sundurliðað eftir árum?


Skriflegt svar óskast.