Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Prentað upp.

Þingskjal 492  —  203. mál.
Fyrirspyrjandi.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Guðmundi Inga Kristinssyni um breytingar á reglum um skoðun ökutækja.


     1.      Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á reglum um skoðun ökutækja á næstu mánuðum? Eru þær vegna breyttra reglna á EES-svæðinu um skoðun ökutækja?
    Meðal breytinga sem til stendur að gera eru breytingar á flokkun annmarka en annmarkar eru flokkaðir í þrjá flokka eftir alvarleika þeirra. Flokkarnir skiptast í minni háttar annmarka, meiri háttar annmarka og hættulega eða alvarlega annmarka.
    Reglugerð nr. 414/2021 um skoðun ökutækja innleiðir tilskipun 2014/45/ESB um reglubundnar prófanir á aksturshæfni vélknúinna ökutækja og eftirvagna þeirra og um niðurfellingu á tilskipun 2009/40/EB en í tilskipuninni er kveðið á um samræmdar reglur Evrópuríkja um skoðun ökutækja. Gerð nýrrar skoðunarhandbókar Samgöngustofu er einnig hluti af innleiðingu tilskipunarinnar en í henni er kveðið á um verklagsreglur fyrir skoðunarstofur og hvernig dæma skuli einstök skoðunaratriði eða annmarka.

     2.      Munu fyrirhugaðar breytingar gera strangari kröfur um ástand bifreiða? Ef já, að hvaða leyti verða kröfur hertar?
    Í viðauka I við tilskipun 2014/45/ESB er kveðið á um lágmarkskröfur til skoðana og skoðunaraðferðir sem mælt er með við prófun á aksturshæfni ökutækja. Þar á meðal er að finna fyrrnefnda flokkun annmarka sem felur í sér að harðar er nú tekið á ýmsum atriðum. Þá hefur þeim atriðum sem skoða ber fjölgað og á það m.a. við um atriði sem falla undir hættulega annmarka. Þá teljast sum atriði sem áður töldust minni háttar annmarkar nú meiri háttar annmarkar og sum atriði sem áður töldust meiri háttar annmarkar teljast nú hættulegir annmarkar. Uppfærð skoðunarhandbók mun að meginstefnu til taka mið af þessum breytingum. Hins vegar er jafnframt til skoðunar hvort rétt sé að heimila ökutækjum sem hafa tiltekna annmarka sem falla í alvarlegasta flokk að aka stystu leið á verkstæði þrátt fyrir almennt notkunarbann ökutækis, að því gefnu að slíkt fyrirkomulag ógni ekki umferðaröryggi.
    Í reglugerð um skoðun ökutækja nr. 414/2021 er að finna reglur sem kveða á um það hvaða afleiðingar það hefur fyrir ökutæki ef annmarki í tilteknum flokki finnst við skoðun og í skoðunarhandbók Samgöngustofu er svo kveðið á um það í hvaða flokk tilteknir annmarkar falla. Ef annmarki kemur í ljós við skoðun ökutækis getur niðurstaða skoðunar verið athugasemd, endurskoðun eða notkun bönnuð eftir því í hvaða flokk annmarkar falla.
    Í 7. gr. tilskipunarinnar er fjallað um mat á annmörkum (e. deficiencies) við prófanir á ökutækjum. Þar kemur fram að annmarki flokkist sem hættulegur skapi hann tafarlausa hættu fyrir umferðaröryggi eða hafi áhrif á umhverfið.
    Hér á landi hafa reglur um skoðun ökutækja í fjölda ára kveðið á um að ef vart verður við annmarka við skoðun ökutækis sem fellur í alvarlegasta flokk (hættulegur) skuli notkun þess bönnuð.