Ferill 355. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 500  —  355. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um hagkvæmnisathugun á samgöngubótum í Fjallabyggð.


Flm.: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson.


    Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að framkvæma hagkvæmnisathugun á samgöngubótum í Fjallabyggð. Athugunin taki til vegagerðar á svæðinu og þeirra samgöngukosta sem liggja fyrir. Áhersla verði lögð á hvernig tryggja megi vegaöryggi. Metin verði þau áhrif sem bættar samgöngur á norðanverðum Tröllaskaga og út í Eyjafjörð, úr Fljótum til Dalvíkur og inn á Akureyri, munu hafa á samfélag og byggð á svæðinu.
    Sérstaklega verði litið til styrkingar svæðisins sem eins atvinnu- og þjónustusvæðis og til uppbyggingar ferðaþjónustu. Ráðherra leggi niðurstöður athugunarinnar ásamt kostnaðaráætlun fyrir Alþingi eigi síðar en 31. maí 2022.

Greinargerð.

    Sveitarfélagið Fjallabyggð varð til við sameiningu Siglufjarðarkaupstaðar og Ólafsfjarðarbæjar árið 2006 og hefur þá sérstöðu að þar eru þrenn jarðgöng. Tvenn af þeim, Strákagöng og Múlagöng, eru einu jarðgöngin á Íslandi sem eru að fullu einbreið. Mikil hætta vegna veðurs hefur leitt til tíðrar lokunar á bæði Siglufjarðarvegi og veginum fyrir Ólafsfjarðarmúla og lokast íbúar Fjallabyggðar oft inni af þeim sökum.
    Öllu lengri bið eftir samgöngubótum er óviðunandi. Mikilvægt er að fram fari hagkvæmnisathugun á samgöngubótum í Fjallabyggð til að tryggja nauðsynlegt öryggi íbúa og aðgengi þeirra að heilbrigðisþjónustu, verslun og annarri þjónustu. Íbúar á landsbyggðinni verða að njóta sama öryggis og hafa sömu tækifæri og þeir sem á höfuðborgarsvæðinu búa. Samgöngubætur í dreifbýli eru í senn byggða- og jafnréttismál.

Samgöngubætur frá Siglufirði vestur í Fljót.
    Ljóst er að veruleg hætta stafar af mögulegum skriðum á Siglufjarðarvegi. Fram er komin viðbragðsáætlun Vegagerðarinnar, önnur útgáfa frá 6. október 2021, vegna hættu á jarðskriði í Almenningum og vegna skriðu- og grjóthrunshættu á veginum frá Hraunum til Siglufjarðar. Í áætluninni er fjallað um viðbrögð vegna mögulegs jarðskriðs á veginum sem veldur broti eða missigi og er fyrst og fremst talið geta skapað hættu fyrir vegfarendur. Enn fremur getur orðið hætta af grjóti sem hrunið hefur á veginn.
    Strákagöng eru ein elstu göng landsins og vegna þeirrar hættu sem staðsetning þeirra veldur er þörf á að bregðast við með því að flýta samgöngubótum frá Siglufirði vestur í Fljót.

Samgöngubætur frá Ólafsfirði til Dalvíkur.
    Múlagöng liggja milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og eru einbreið jarðgöng sem opnuð voru fyrir umferð í desember árið 1990 og vígð í mars 1991. Göngin standast ekki nútímakröfur á nokkurn hátt. Ekki er boðlegt að tala um breikkun Múlaganga vegna mikillar ófærðar um Ólafsfjarðarmúla, og verður því að leggja áherslu á að athuga nýja jarðgangakosti milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur.
    Þingsályktunartillögu þessari er ætlað að stuðla að því að ráðist verði í samgöngubætur í Fjallabyggð eins fljótt og unnt er. Brýnt er að athuga þýðingu þessara samgöngubóta fyrir byggðina og draga fram sterkari forsendur fyrir því að hraða slíkum úrbótum í sveitarfélaginu.