Ferill 359. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 505 — 359. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um endurskoðun skattmatsreglna.
Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.
1. Með hvaða hætti verða skattmatsreglur endurskoðaðar á kjörtímabilinu, sbr. fyrirheit í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar?
2. Hvaða „óeðlilegu og óheilbrigðu hvatar til stofnunar einkahlutafélaga“ eru í íslensku lagaumhverfi, sbr. umfjöllun í stjórnarsáttmála?
3. Hvers vegna hefur ekki verið gripið til aðgerða fyrr til að sporna gegn þessum hvötum?
4. Hvernig hyggst ríkisstjórnin „koma í veg fyrir“ þessa hvata, sbr. fyrirheit í stjórnarsáttmála?
5. Hvernig hyggst ríkisstjórnin „tryggja að þau sem hafa eingöngu fjármagnstekjur reikni sér endurgjald og greiði þannig útsvar“, sbr. fyrirheit í stjórnarsáttmála?
Skriflegt svar óskast.