Ferill 361. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 508  —  361. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um dvalar- og atvinnuréttindi fyrir ungt fólk.

Frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur.


    Stendur til hjá ráðuneytinu að jafna stöðu ungs fólks á Íslandi með því að hefja í samvinnu við dómsmálaráðuneytið vinnu við gerð samninga um vegabréfsáritun sem varða dvalar- og atvinnuréttindi fyrir ungt fólk við þær þjóðir sem nágrannar okkur hafa samið við? Ef svo er, hvenær og hvernig ætlar ráðherra að ná þeim markmiðum?


Skriflegt svar óskast.