Ferill 115. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 514  —  115. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um skólavist umsækjenda um alþjóðlega vernd.


     1.      Hversu margir umsækjendur um alþjóðlega vernd voru undir 18 ára aldri 1. nóvember hvert undanfarinna fimm ára, sundurliðað eftir fæðingarári umsækjenda?
    Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun eru upplýsingar um umsækjendur um alþjóðlega vernd ekki skráðar með þeim hætti hjá stofnuninni að hægt sé að skoða afturvirkt hversu margir umsækjendur voru á ákveðnum aldri á hverjum tíma. Í eftirfarandi töflu má þó sjá fjölda umsækjenda sl. sex ár sem voru undir 18 ára aldri þegar umsókn var lögð fram, sundurliðað eftir umsóknar- og fæðingarári (mynd 1).


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
































Mynd 1.    Fjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd á árunum 2016–2021 sem voru undir 18 ára aldri þegar umsókn var lögð fram, sundurliðað eftir umsóknar- og fæðingarári.

     2.      Hversu margir umsækjendur voru skráðir í skóla 1. nóvember hvert undanfarinna fimm ára, sundurliðað eftir því hvort um leik-, grunn- eða framhaldsskóla var að ræða? Jafnframt er óskað upplýsinga um hversu marga leik- og grunnskóla um er að ræða og hvernig þeir skiptast á milli sveitarfélaga á hverju ári.
    Fjölskyldur njóta þjónustu hjá þeim sveitarfélögum sem Útlendingastofnun hefur gert samninga við og er skólavist fyrir börn á meðal þess sem samningarnir ná til. Útlendingastofnun hefur gert slíka samninga við þrjú sveitarfélög, þ.e. Reykjavíkurborg, Reykjanesbæ og Hafnarfjarðarkaupstað.
    Eftirfarandi tölfræði barst frá Reykjavíkurborg yfir fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd undir 18 ára aldri í skóla 1. nóvember hvert undanfarinna sex ára, sundurliðað eftir fæðingarári (mynd 2). Einungis var unnt að greina frá fjölda barna á hverju skólastigi fyrir sig á árinu 2021 (mynd 3). Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg hefur 31 leikskóli, 25 grunnskólar og þrír framhaldsskólar tekið við börnum sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd á umræddu tímabili.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.































Mynd 2.    Fjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd undir 18 ára aldri í skóla í Reykjavíkurborg 1. nóvember hvert undanfarinna sex ára, sundurliðað eftir fæðingarári.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.






Mynd 3.     Fjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd undir 18 ára aldri í skóla í Reykjavíkurborg 1. nóvember 2021, sundurliðað eftir skólastigi.

    Eftirfarandi tölfræði barst frá Reykjanesbæ yfir fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd undir 18 ára aldri í skóla 1. nóvember hvert undanfarinna sex ára, sundurliðað eftir skólastigi (mynd 4).

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.










Mynd 4.    Fjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd undir 18 ára aldri í skóla í Reykjanesbæ 1. nóvember hvert undanfarinna sex ára, sundurliðað eftir skólastigi.

    Samkvæmt upplýsingum frá Reykjanesbæ sækja börnin leik- og grunnskóla í sínum skólahverfum en í Reykjanesbæ eru leikskólarnir ellefu, grunnskólarnir sjö og einn framhaldsskóli.
    Þrátt fyrir ítrekanir bárust engar upplýsingar frá Hafnarfjarðarkaupstað.

     3.      Hversu margir umsækjendur voru utan skóla 1. nóvember hvert undanfarinna fimm ára og hverjar voru helstu ástæður fyrir því?
    Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg liggur umbeðin tölfræði ekki fyrir. Það hafa þó verið stakir umsækjendur á framhaldsskólaaldri sem hafa verið ólæsir og óskrifandi. Í þeim tilfellum hafa tungumálaskólar sinnt kennslu í lestri og skrift.
    Samkvæmt upplýsingum frá Reykjanesbæ getur barn verið utan leikskóla meðan beðið er eftir leikskólaplássi sem er að meðaltali tveir til þrír mánuðir. Frávik frá þessum tíma er ef ekki er unnt að bjóða barni pláss í sínu skólahverfi og foreldrar óska eftir því að bíða eftir plássi fremur en að barn fari í annað skólahverfi. Hjá Reykjanesbæ eru engir grunnskólanemendur utan skóla og ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort biðtími er eftir því að komast að í framhaldsskóla. Menntanet Framhaldsskóla Suðurnesja nær til aldurshópsins fram að tvítugu og er þar sérstök áhersla lögð á íslensku, ensku, samfélagsfræði og lýðheilsu.
    Þrátt fyrir ítrekanir bárust engar upplýsingar frá Hafnarfjarðarkaupstað.

     4.      Þegar barn á skólaskyldualdri er á meðal umsækjenda um alþjóðlega vernd, hversu langur tími líður að jafnaði frá komu þar til barn hefur skólagöngu? Hver er lengsti tíminn sem barn í þeirri stöðu var utan skóla hvert undanfarinna fimm ára?
    Samkvæmt 2. mgr. 33. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, skal barn sem sækir um alþjóðlega vernd eiga þess kost að stunda skyldunám í grunnskóla eða sambærilegt nám innan hins almenna skólakerfis eða á dvalarstað þess eins fljótt og unnt er. Með menntun á dvalarstað barnsins er átt við undirbúningsmenntun sem kann að þurfa til þess að búa barnið undir menntun í íslensku skólakerfi, t.d. til þess að það hafi nægilegan bakgrunn til að stunda nám með jafnöldrum sínum eða til þess að það hafi nægilegan grunn í íslensku. Í 27. gr. reglugerðar um útlendinga, nr. 540/2017, með síðari breytingum, kemur fram að Útlendingastofnun skuli tryggja að barn sé að jafnaði ekki lengur en fjórar vikur í umsjá stofnunarinnar án þess að vera komið í almennan skóla eða annað úrræði til menntunar. Enn fremur segir þar að leitast skuli við að barn sé komið í almennan skóla innan tólf vikna frá umsókn um alþjóðlega vernd.
    Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun eru börn að jafnaði byrjuð í skóla fimm til sex vikum eftir komu til landsins. Það gerist þó ekki fyrr en eftir fyrstu læknisskoðun hjá göngudeild sóttvarna sem hefur tekið mislangan tíma, u.þ.b. þrjár til sex vikur. Yfirleitt er þó undirbúningsvinna að skólagöngu hafin áður en fyrstu læknisskoðun lýkur. Undanfarin tvö ár hefur Útlendingastofnun náð að koma fjölskyldum til sveitarfélags áður en fyrstu læknisskoðun lýkur og hafa börn þá að jafnaði náð að komast beint í skóla hjá sveitarfélagi að læknisskoðun lokinni.
    Ekki eru til upplýsingar um lengsta tímann sem tekið hefur að koma barni í skóla.