Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 517 — 245. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um nauðungarsölu, fjárnám og gjaldþrotaskipti hjá einstaklingum.
1. Hversu margar fasteignir einstaklinga voru seldar nauðungarsölu árið 2021? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum, embættum og umdæmum sýslumanna.
Eftirfarandi tölfræði var fengin úr starfskerfum sýslumanna með vélrænni talningu í samstarfi við sýslumannaráð og þjónustuveitanda sýslumanna. Um er að ræða fjölda fasteigna sem voru skráðar í eigu einstaklinga, með skráð málalok „lokið með afsali“ og lokadagsetningu á árinu 2021, sundurliðað eftir mánuðum og umdæmum sýslumannsembættanna. Í töflunni eru ekki birtar upplýsingar um heildarfjölda þeirra nauðungarsölumála sem sýslumannsembættin voru með til meðferðar, enda fyrirspurnin afmörkuð við einstaklinga, fasteignir og fyrrgreind málalok. Þess má geta að mikill meiri hluti nauðungarsölubeiðna er afturkallaður meðan beiðnir eru til umfjöllunar hjá embættunum. Tölfræðin endurspeglar því ekki heildarfjölda þeirra nauðungarsölubeiðna sem sýslumenn voru með til meðferðar yfir fyrrgreint tímabil.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hversu mörg fjárnám voru gerð hjá einstaklingum árið 2021 og hversu mörg þeirra reyndust árangurslaus? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum, embættum og umdæmum sýslumanna.
Eftirfarandi tölfræði var fengin úr starfskerfum sýslumanna með vélrænni talningu í samstarfi við sýslumannaráð og þjónustuveitanda sýslumanna. Um er að ræða fjölda fjárnámsbeiðna hjá einstaklingum, með skráð málalok „árangurslaust“ og tegund eignar sem fjárnám var gert í með skráða lokadagsetningu á árinu 2021. Tölfræðin er sundurliðuð eftir mánuðum og umdæmum sýslumannsembættanna. Í töflunni eru ekki birtar upplýsingar um fjölda þeirra fjárnámsmála sem sýslumannsembættin voru með til meðferðar á árinu, enda er fyrirspurnin afmörkuð við einstaklinga og málalokin fjárnám og árangurslaust. Tölfræðin endurspeglar því ekki heildarfjölda þeirra fjárnámsbeiðna sem sýslumenn höfðu til umfjöllunar yfir fyrrgreint tímabil.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
3. Bú hversu margra einstaklinga voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2021? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum, dómstólum og umdæmum þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá dómstólasýslunni voru bú 201 einstaklings tekin til gjaldþrotaskipta árið 2021, sbr. eftirfarandi töflu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.