Ferill 266. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 521  —  266. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um sóttvarnaráð.


     1.      Hve oft fundaði sóttvarnaráð á tímabilinu 1. janúar 2020 til 25. janúar 2022?
    Sóttvarnaráð fundaði formlega tólf sinnum á tímabilinu 1. janúar 2020 til 1. janúar 2022.

     2.      Hefur sóttvarnaráð mótað stefnu í sóttvörnum vegna COVID-19-sjúkdómsins, sbr. 3. mgr. 6. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997?
    Sóttvarnaráð hefur komið að mótun stefnu stjórnvalda í sóttvörnum meðal annars með því að fjalla á fundum sínum um ýmis atriði er varða skimanir og bólusetningar auk þess að rýna lagafrumvörp og reglugerðir út frá sjónarhóli sóttvarna, með bréfaskrifum til ráðherra. Eftir að Covid-19 heimsfaraldurinn hófst hefur sóttvarnalæknir kynnt og rætt ráðstafanir sínar formlega á fundum sóttvarnaráðs og hafa meðlimir sóttvarnaráðs þar fengið tækifæri til að bregðast við þeim og koma skoðunum sínum á framfæri.

     3.      Hvernig var samráði háttað við sóttvarnaráð þegar teknar voru ákvarðanir um sóttvarnatakmarkanir á tímabilinu 1. janúar 2020 til 25. janúar 2022?
    Samráð sóttvarnaráðs við sóttvarnalækni og heilbrigðisyfirvöld hefur verið með ýmsum hætti. Líkt og áður var getið hefur sóttvarnalæknir kynnt og rætt áætlanir sínar á formlegum fundum ráðsins. Þá eru margir meðlimir ráðsins í ýmsum ráðgjafa- og vinnuhópum er varða Covid-19 og hafa komið sjónarmiðum ráðsins á framfæri þar. Jafnframt hefur sóttvarnalæknir iðulega haft samráð og rætt sínar hugleiðingar við ýmsa meðlimi ráðsins, a.m.k. vikulega og stundum mun oftar.