Ferill 371. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Prentað upp.
Þingskjal 524 — 371. mál.
Flutningsmenn.
Tillaga til þingsályktunar
um uppbyggingu klasa opinberra fyrirtækja og stofnana.
Flm.: Ágúst Bjarni Garðarsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Logi Einarsson.
Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að skipa starfshóp sem geri tillögu að uppbyggingu klasa opinberra fyrirtækja og stofnana. Markmið starfshópsins verði að koma opinberum fyrirtækjum og stofnunum fyrir á sama stað til þess að ná fram rekstrarlegri hagræðingu og öðrum samlegðaráhrifum. Unnið verði að uppbyggingu slíks klasa í nánu samstarfi við einkaaðila og sveitarfélög. Starfshópurinn skili tillögu sinni fyrir árslok 2022.
Greinargerð.
Uppbygging klasa opinberra fyrirtækja og stofnana getur skilað umtalsverðri rekstrarlegri hagræðingu. Gera mætti ráð fyrir 5.000–6.000 m2 skrifstofuhúsnæði þar sem ynnu 250–300 starfsmenn nokkurra lítilla opinberra fyrirtækja og stofnana. Með slíkri útfærslu mætti ná fram hagræðingu fyrir þau samlegðaráhrif sem yrðu í rekstri þeirra fyrirtækja og stofnana sem þar væru til húsa. Þar má nefna sameiginlegan rekstur tölvukerfa, móttöku, mötuneytis og húsnæðis.
Flutningsmenn leggja auk þess til að klasi sem þessi verði á slóðum þar sem nýta megi umferðarmannvirki betur, í þeim skilningi að umferð að klasanum verði í gagnstæða átt við mestan umferðarþunga nú svo að takast megi að létta á honum. Þá leggja flutningsmenn til að horft verði til staðsetningar þar sem finna megi hágæðaalmenningssamgöngur. Þannig nýttust umferðarmannvirki betur, sem væri stórt umhverfismál. Mælst er til þess að starfshópurinn taki tillit til allra þessara þátta við tillögugerð sína.