Ferill 375. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 532 — 375. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um raforku.
Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.
1. Hve mikið jarðefnaeldsneyti var nýtt til raforkuframleiðslu og kyndingar á Íslandi ár hvert 2017–2021? Hvernig skiptist sú notkun eftir landshlutum?
2. Hve mikið var framleitt af raforku á Íslandi með fallvatnsvirkjunum, jarðvarmavirkjunum og öðrum vistvænum orkugjöfum ár hvert á fyrrgreindu tímabili?
3. Hver var áætluð raforkuþörf samfélagsins ár hvert á fyrrgreindu tímabili? Hve mikið er áætlað að raforkuþörf aukist ár hvert 2022–2026? Svar óskast sundurliðað eftir raforkuþörf heimila, fyrirtækja, stóriðju og gagnavera.
4. Hve mikla orku keypti hver almenningsveita af öðrum framleiðendum ár hvert 2017– 2021?
Skriflegt svar óskast.