Ferill 392. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 561  —  392. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um brotthvarf háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hver var fjöldi og hlutfall háskólamenntaðra sérfræðinga sem hurfu af almennum vinnumarkaði á opinberan vinnumarkað árin 2010–2021?
     2.      Hyggst ráðherra sporna við brotthvarfi háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði á opinberan vinnumarkað? Ef svo er, hvernig?
     3.      Hyggst ráðherra útvista verkefnum háskólamenntaðra sérfræðinga hins opinbera í auknum mæli og kaupa oftar þjónustu einkaaðila fremur en fjölga háskólamenntuðum ríkisstarfsmönnum? Ef svo er, hvernig?