Ferill 403. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 580 — 403. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um skotvopnaeign, innflutning skotvopna og framleiðslu.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hversu mörg skotvopn voru skráð 1. janúar sl.? Hversu margir einstaklingar eru skráðir eigendur skotvopna og hversu mörg vopn eiga þeir 20 einstaklingar sem flest vopn eiga? Svarið óskast sundurgreint eftir tegund skotvopna, til hvaða nota þau voru ætluð og kyni eigenda.
2. Hversu mörg skotvopn voru flutt til landsins hvert undanfarinna tíu ára? Óskað er að fram komi fjöldi og tegund skotvopna, til hvaða nota þau voru ætluð og kyn eiganda.
3. Hvaða sérstöku skilyrði þurfa umsækjendur að uppfylla til að teljast safnarar þegar veitt er undanþága frá innflutningsbanni vegna ótvíræðs söfnunargildis skotvopns, sbr. 7. mgr. 5. gr. vopnalaga? Eru gerðar auknar kröfur um örugga vörslu slíkra vopna? Telur ráðherra ástæðu til að endurskoða verklag eða reglur varðandi undanþágur á grundvelli söfnunargildis?
4. Hversu oft var sótt um undanþágu frá banni við innflutningi á sjálfvirkum skotvopnum hvert undanfarinna tíu ára? Hversu oft var undanþága samþykkt og hversu oft var henni hafnað? Óskað er að fram komi fjöldi og tegund skotvopna, til hvaða nota þau voru ætluð og kyn umsækjenda. Hversu mörg sjálfvirk skotvopn voru skráð 1. janúar sl.? Hversu margir einstaklingar eru skráðir eigendur þeirra og hversu mörg eiga þeir 20 einstaklingar sem flest sjálfvirku skotvopnin eiga? Svarið óskast greint eftir kyni.
5. Hver var aldur vopnanna eða um hvaða tengsl við sögu landsins var að ræða, eftir því hvort skilyrðið var grundvöllur undanþágunnar, sbr. 7. mgr. 5. gr. vopnalaga, í þeim tilvikum þar sem umsókn um undanþágu var samþykkt?
6. Hvaða ástæður voru fyrir því þegar umsókn um undanþágu var hafnað?
7. Hversu mörg skotvopn hafa verið tilkynnt týnd eða stolin undanfarin tíu ár? Fyrir hvert tilvik er þess óskað að fram komi hvenær tilkynning barst yfirvöldum, tegund skotvopns, m.a. hvort um hafi verið að ræða sjálfvirkt skotvopn, og til hvaða nota það var ætlað. Enn fremur komi fram hvort vopnið hafi síðar verið endurheimt og þá við hvaða aðstæður.
8. Telur ráðherra ástæðu til að endurskoða verklag eða reglur í ljósi aukins innflutnings á sjálfvirkum skotvopnum?
9. Hversu mörg leyfi hefur lögregla veitt til framleiðslu skotvopna hér á landi á hverju ári síðastliðin 10 ár? Af þeim, hve mörg ef einhver, voru ætluð til útflutnings sbr. 7. mgr. 5. gr. vopnalaga?
10. Hversu mörg vopn hefur lögregla haldlagt sem framleidd voru með þrívíddarprentun? Hversu mörg þeirra voru framleidd hér á landi?
11. Hversu oft hefur lögreglustjóri veitt leyfi til breytinga á skotvopnum skv. 38. gr. vopnalaga á hverju ári undanfarin 10 ár? Hversu mörg vopn hafa verið haldlögð á sama tíma þar sem um er að ræða breytingar á skotvopni án leyfis?
Skriflegt svar óskast.