Ferill 263. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 585 — 263. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur um fyrirhuguð Álftafjarðargöng.
1. Hyggst ráðherra flýta endurskoðun núverandi samgönguáætlunar með það að markmiði að setja Álftafjarðargöng sem fyrst á framkvæmdaáætlun í ljósi öryggissjónarmiða?
Endurskoðun samgönguáætlunar er nú þegar hafin. Hún hófst með gerð grænbókar um samgöngumál sem út kom í september 2021. Vinna við hvítbók er að hefjast og er gert ráð fyrir því að tillaga til þingsályktunar um nýja samgönguáætlun fyrir árin 2023–2037 verði lögð fyrir Alþingi haustið 2022.
Þá er unnið að heildstæðri greiningu á jarðgangakostum á Íslandi í samræmi við samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024. Er gert ráð fyrir að valkostir verði metnir með tilliti til fýsileika, kostnaðar og félagshagfræðilegs ábata. Á grunni þeirrar greiningar verður síðan gerð tillaga um forgangsröðun jarðgangakosta til lengri tíma sem tekin verður til umfjöllunar við gerð nýrrar samgönguáætlunar.
Vegagerðin gaf út yfirlitsáætlun jarðganga í júlí 2021 þar sem gerð er grein fyrir athugunum á alls 18 jarðgangakostum utan höfuðborgarsvæðisins. Í áætluninni eru tilgreind ellefu jarðgangaverkefni sem mælt er með að tekin verði fyrst til nánari skoðunar. Álftafjarðargöng eru þeirra á meðal. Vegagerðin vinnur nú að því að meta samfélagsáhrif þessara 18 jarðgangakosta. Gera má ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki vorið 2022.
2. Hvað hefur, að mati ráðherra, breyst varðandi Kirkjubólshlíð og Súðavíkurhlíð er snertir umferðaröryggi og greiðar samgöngur um fjórðunginn frá fyrri samgönguáætlun fram að þeirri sem nú gildir sem réttlætir frestun Álftafjarðarganga?
Eins og að framan greinir er nú unnið að greiningu á jarðgangakostum. Jarðgöng milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar eru ein af þeim jarðgöngum sem verið hafa í umræðunni sem fýsileg göng. Þessi göng hafa ekki verið á áætlun áður og því er ekki um frestun þeirra að ræða.
3. Hefur alfarið verið snúið frá því að skoða af alvöru, og þá með tilheyrandi fjármagni í samgönguáætlun, að bora göng milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar og leggja þannig af veginn um Kirkjubólshlíð og Súðavíkurhlíð?
Eins og að framan greinir er nú unnið að greiningu á jarðgangakostum, þar á meðal göngum milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar.
4. Hvaða sjónarmið ráða þegar ákveðið er að loka veginum um Súðavíkurhlíð vegna óvissuástands og yfirvofandi snjóflóðahættu og hafa ferðaáætlanir þungaflutninga eitthvað með það að gera?
Snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands fylgist með helstu vegum þar sem snjóflóðahætta er og metur hve líklegt er að snjóflóðahætta skapist. Vegurinn um Súðavíkurhlíð er einn af þessum vegum.
Snjóflóðaspá Veðurstofunnar er í fjórum stigum:
1. Engin hætta.
2. Viðvörun um hættu næstu klukkustundir.
3. Óvissustig, hætta metin 10–40%.
4. Hættustig, hætta metin meiri en 40%.
Hvert stig kallar á ákveðinn viðbúnað og vöktun og þegar tekin er ákvörðun um hvort vegi verði lokað er byggt á hættumati Veðurstofunnar. Ákvörðunin er tekin sameiginlega af lögreglu og Vegagerðinni. Ekki er horft sérstaklega til ferðaáætlana þungaflutninga við þá ákvörðunartöku.
Notað er skýrt verklag samkvæmt viðbragðsáætlun vegna snjóflóðahættu. Viðbragðsáætlunin er útbúin af Vegagerðinni í samvinnu við Neyðarlínuna og lögreglu á svæðinu. Hún snýr að því hvernig brugðist er við þeim upplýsingum sem fást frá Veðurstofunni og af mælitækjum Vegagerðarinnar.
5. Hver væru samlegðaráhrif hvað heildarkostnað varðar með lagningu nýs rafstrengs og ljósleiðara um Álftafjarðargöng og sparnaðar vegna notkunar varaafls vegna bilana á byggðalínu til Súðavíkur í samanburði við kostnað við endurbyggingu þessara innviða við núverandi aðstæður?
Slík kostnaðarábatagreining yrði hluti af heildarmati á gangagerðinni.
6. Hvaða úrbóta á veginum um Kirkjubólshlíð og Súðavíkurhlíð er að vænta á næstu 10 árum sem styddu við eitt atvinnusóknarsvæði á norðanverðum Vestfjörðum sem og þá atvinnuuppbyggingu sem er í fiskeldi, ferðaþjónustu, kalkþörungaverksmiðju ásamt öðrum iðnaði tengdum sjávarútvegi og matvælaframleiðslu á svæðinu?
Unnið hefur verið að viðhaldi og auk þess gerðar breytingar til að efla umferðaröryggi. Þar má nefna útvíkkun snjóflóðaskápa og lagfæringu hliðarsvæða að undanförnu. Þá stendur yfir vinna við undirbúning nýrrar samgönguáætlunar sem leggja á fyrir Alþingi haustið 2022, eins og rakið var að framan.